Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stansted 15 mótmælendurnir fara ekki í fangelsi

$
0
0

Stansted 15, hópurinn sem dæmdur var fyrir brot á lögum um loftferðir og sjóferðir í sl. desember, vegna mótmælaaðgerðar á Stansted-flugvelli vorið 2017, mun að óbreyttu ekki afplána fangelsisdóm. Þetta varð ljóst á miðvikudag, þegar dómari í málinu, Christopher Morgan, ákvað loks og tilkynnti um refsingu fyrir brotið. Í dómsorði sagði hann meðal annars: „I accept that your intentions were to demonstrate“ eða: „Ég fellst á að ásetningur ykkar var að mótmæla“ og ekki, þar með, að valda tjóni eða skapa hættu.

Frá aðgerðinni á flugbrautinni. Ljósmynd frá meðlimi hópsins.

Frá aðgerðinni á flugbrautinni. Ljósmynd frá meðlimi hópsins.

Stöðvuðu fjöldabrottvísun

Kvennablaðið greindi áður frá aðgerðinni, málshöfðuninni og dómnum sem féll gegn fimmtán manna hópnum. Þau fundu sér leið inn á flugbraut Stansted-flugvallar og komu í veg fyrir brottför flugvélar sem yfirvöld höfðu ætlað að nota til fjöldabrottvísunar. Aðferðirnar sem þau beittu ollu hvorki tjóni á fólki né búnaði, en þær fólust meðal annars í að hlekkja sig við hluta flugvélarinnar þannig að hún kæmist ekki á loft. Einni flugbraut á vellinum var lokað í um klukkustund á meðan starfsfólk flugvallarins gerði öryggisúttekt á henni í kjölfar aðgerðarinnar. Þá voru 23 flugvélar látnar lenda annars staðar.

Meðal mótmælendanna fimmtán var Melanie Strickland, lögfræðingur að mennt. Hún sagði í samtali við vikurit breskra lögfræðinga, The Law Society Gazette, að markmið hópsins með aðgerðinni hefði verið að hjálpa fólki í hættu með því að tryggja að flugvélin tæki ekki á loft, þannig að fólk sem var þar í haldi hefði tíma til að fá almennilega lögfræðiaðstoð og ganga frá skjölum sem myndu koma í veg fyrir brottvísanir þeirra. Um leið vildu þau afhjúpa grimmdina í brottvísanaferlunum, einkum í fjöldabrottvísunum með leiguflugi.

Mikill fjöldi stuðningsfólks kom saman fyrir utan dómshúsið á miðvikudag.

Mikill fjöldi stuðningsfólks kom saman fyrir utan dómshúsið á miðvikudag.

Ellefu manns úr vélinni nú með landvistarleyfi

Um borð í flugvélinni voru 60 manns sem til stóð að brottvísa til Nígeríu, Gana og Síerra Leone. Aðgerðin var vel heppnuð, að því leyti að fresta þurfti brottvísunum allra sem voru um borð. Ellefu úr hópnum reyndust hafa réttmætar ástæður til dvalar í Bretlandi og hafa nú fengið dvalarleyfi þar í landi. Þar á meðal reyndust tvær manneskjur hafa verið þolendur mansals.

Dómarinn sagði hópnum á miðvikudag að þau hefðu tekið hluti inn á flugbrautina sem þau gátu ekki vitað hvort hefðu allir endurheimst, á svæði þar sem annars smávægilegir munir gætu valdið miklu tjóni. Þá nefndi hann sérstaklega þrífót sem hópurinn bar nálægt væng og eldsneytistanki Boeing 767 vélar Ef neisti hefði flogið við samslátt málma og lent í vængnum hefði það getað haft geigvænlegar afleiðingar, sagði dómarinn. Hann sagði ennfremur að raunverulegt tjón af aðgerðinni hefði numið yfir einni milljón punda, en tiltók ekki hvaða aðilar hefðu orðið fyrir því tjóni. Hins vegar hafi ásetningur þeirra ekki verið að valda tjóni.

Stuðningsfólk fyrir utan dómshúsið á miðvikudag.

Stuðningsfólk fyrir utan dómshúsið á miðvikudag.

„Hefðu aldrei átt að sæta ákæru undir ákvæði hryðjuverkalaga“

Þrennt fékk skilorðsbundinn dóm en tólf manns úr hópnum voru dæmd til samfélagsstarfa. Hópurinn er nú á aldrinum 27 til 44 ára. Þrímenningarnir sem munu afplána á skilorði voru áður sakfelld fyrir þátttöku í mótmælum vegna hnatthlýnunar á Heathrow-flugvelli árið 2015. Ellefu voru dæmd til þess inna af hendi 100 klukkustundir af ólaunuðum samfélagsstörfum á næstu tólf mánuðum, en einn maður í hópnum, 33 ára, var dæmdur til tuttugu daga endurhæfingar vegna veikinda. Næstu tólf mánuði mega þau ekki koma nálægt Stansted-flugvelli nema tilgangur þeirra sé sá að ferðast.

Raj Chada, talsmaður lögmannsstofunnar sem annaðist varnir flestra mótmælendanna, sagði að þeim væri létt að enginn úr hópnum stæði frammi fyrir fangelsisdómi en þetta væri eftir sem áður dapur dagur í réttarsögu Bretlands. „Skjólstæðingar okkar komu í veg fyrir að einstaklingar yrðu færðir ólöglega frá Bretlandi, og hefðu aldrei átt að sæta ákæru undir ákvæði hryðjuverkalaga.“ Þá sagðist hann, og hópinn allan, líta á málið sem misbeitingu á valdi saksóknaraembættisins, og því verði áfrýjað.

Stansted 15. Meðlimur hópsins les sameiginlega yfirlýsingu þeirra fyrir utan dómshúsið.

Stansted 15. Meðlimur hópsins les sameiginlega yfirlýsingu þeirra fyrir utan dómshúsið, 6 feb 2019.

„Ranglæti með djúpstæðar afleiðingar í lífum okkar“

Meðlimir hópsins lásu upp sameiginlega yfirlýsingu fyrir utan dómssalinn, og sögðu dóminn vera „ranglæti sem hefur djúpstæðar afleiðingar í lífum okkar“. Þau sögðu: „Þegar land beitir grimmilegri hryðjuverkalöggjöf gegn fólki fyrir friðsöm mótmæli, dregur aðra af heimilum sínum í rassíum undir dögun, læsir þau inni án tímamarka, þvingar þau um borð í flugvélar um miðjan nótt, tekur þau á staði þar sem líf þeirra gæti verið í hættu, er eitthvað alvarlegt að“.

Múgur og margmenni var samankominn við dómshúsið í Chelmsford, hópnum til stuðnings, á miðvikudagsmorgun, og tók undir yfirlýsinguna með slagorðinu: „No borders! No nations! Stop deportations!“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images