Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

ASÍ-UNG krefjast fullra taxtalauna frá 16 ára aldri

$
0
0

Eftirfarandi orðsending barst frá ASÍ-UNG, samtökum ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar, á fimmtudag:

„Ekkert um okkur án okkar!

Stjórn ASÍ-UNG hafnar alfarið órökstuddri aldursbundinni mismunun og ætlast til þess að byrjunarlaun miðist við 16 ára aldur.

Í núverandi kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins við stéttarfélög verkafólks og verslunarmanna (innan ASÍ) er kveðið á um að starfsmenn undir 20 ára séu á lægri taxtalaunum en þeir sem eldri eru.

Stjórn ASÍ-UNG telur óheimilt að mismuna einstaklingum sem sinna sömu eða jafnverðmætum störfum vegna aldurs.

ASÍ-UNG krefst þess að Samtök atvinnulífsins færi byrjunarþrepið niður í 16 ár og gæti þannig jafnræðis á vinnumarkaði.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images