Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lögregla Suðurnesja handtók mann eftir sjálfsvígstilraun

$
0
0

Lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af manninum sem handtekinn var á Ásbrú eftir sjálfsvígstilraun á miðvikudag.

Kvennablaðið hafði samband til að spyrjast fyrir um stöðu málsins. Varðstjóri sagðist engar upplýsingar veita „fólki sem hringir svona og kynnir sig og spyr einhverra spurninga“. Hann bætti því við að hann gæti ekki rætt um einstök mál án leyfis frá yfirboðurum.

Við spurðum þá hvernig farið væri með tilfelli sem þessi almennt, hvort mönnum sem handteknir eru eftir sjálfsvígstilraun væri tryggð sálfræðiþjónusta eða önnur heilbrigðisþjónusta eftir þörfum. Maðurinn sagði að svo væri, já, lögreglan gerði heilbrigðisyfirvöldum alltaf viðvart. Hver viðbrögð þeirra voru í þessu tilfelli, eða hvort manninum var í reynd tryggð aðstoð við hæfi fékkst ekki uppgefið.

Loks spurðum við hvort þessi maður væri enn í haldi lögreglu, en því neitaði varðstjórinn að svara. Samtalið varð ekki mikið lengra.

Sjálfsvígstilraunum flóttafólks á Íslandi virðist hafa fjölgað verulega undanfarið, einkum meðal þeirra sem hafast við í húsnæði Útlendingastofnunar á Ásbrú. Erfitt er þó að nálgast greinargóðar upplýsingar um þessi mál, jafnvel einfaldar grundvallarupplýsingar á við hvort einhverjir og þá hversu margir hafa látið þar lífið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images