Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Reglugerð um bráðabrottvísanir er ólögleg, viðurkennir Dómsmálaráðuneytið

$
0
0

„Forgangsmeðferð“ er það orð sem Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun hafa valið yfir hröðustu synjun hælisumóknar og brottvísun án þess að litið sé til efnisatriða umsóknarinnar. Samkvæmt Útlendingalögum njóta allir þeir umsækjendur þessarar forgangsmeðferðar sem eru ríkisborgarar „öruggra ríkja“ samkvæmt lista Útlendingastofnunar yfir slík ríki. Á listanum eru nú, meðal annars, Ungverjaland, Makedónía, Georgía, Albanía, Bandaríkin og Ástralía. Umsóknir ríkisborgara þeirra um vernd teljast, samkvæmt lögunum, „bersýnilega tilhæfulausar“ og leiða til bráðabrottvísunar án efnislegrar afgreiðslu eða, eins og það nefnist, „forgangsmeðferðar“.

Í drögum Dómsmálaráðuneytisins að frumvarpi um 23 breytingar á Útlendingalögum er enn skerpt á þessari tilhögun, annars vegar með nýju ákvæði um að: „Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum er sæta forgangsmeðferð skulu almennt ekki rökstuddar samhliða“, hins vegar með nýrri lagagrein um málsmeðferð „bersýnilegra umsókna“.

Efnislega er sú lagagrein hins vegar ekki alfarið ný af nálinni: efnislegt inntak hennar var þegar að finna í reglugerð sem sett var árið 2017. Í greinargerð fyrir frumvarpinu nú segir aftur á móti að Kærunefnd útlendingamála hafi litið svo á „að ákveðin ákvæði umræddrar reglugerðar hefðu ekki fullnægjandi lagastoð“. Því hafi reglugerðinni „ekki verið beitt að fullu“. Með öðrum orðum myndi framkvæmd í samræmi við reglugerðina fela í sér lögbrot. „Því er talin ástæða til að færa efni hennar að hluta inn í lögin sjálf.“

Ekki kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu hvort og þá hversu oft reglugerðinni hefur verið beitt í trássi við lög. Reglugerðin er enn í gildi, að meðtöldum þeim ákvæðum sem ráðuneytið sjálft segir nú ólögleg.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images