Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur gert samning við breska fyrirtækið Reveal Records um útgáfu á tónlist hennar í Evrópu. Þriðja sólóplata Hafdísar sem kallast Home mun koma út á vegum Reveal í apríl á næsta ári. Meðal listamanna sem Reveal hefur á sínum snærum má nefna Eddi Reader, Joan as Policewoman, Lau, Chris Wood, Kris Drever, Roddy Woomble, Boo Hewerdine, State of the Union, and Blue Rose Code.
“I’m delighted to welcome Hafdis to the label. I’ve loved her work for a long time and I think this is her best album yet – the songs just leap out.” (Tom Rose, Reveal Records)
Platan mun einnig koma út í Bandaríkjunum og Kanada í apríl 2014 undir merkjum OK!Good, en fyrirtækið gaf einnig út síðustu sóló plötu Hafdísar Synchronised Swimmers.
Hafdís Huld sendi síðast frá sér plötuna Vögguvísur árið 2012. Hún hefur undanfarið einbeitt sér að móðurhlutverkinu, en hún eignaðist dótturina Arabellu Iðunni á síðasta ári.