Klukkan að ganga 12 á miðvikudag birti Margrét Kristín Blöndal, formaður Leigjendasamtakanna, myndband á Facebook þar sem sjá má nemendur Hagaskóla ganga fylktu liði að skrifstofum Kærunefndar útlendingamála, „til að mótmæla því að skólasystur þeirra og fjölskyldu hennar verði vísað úr landi“. Stundin birtir ítarlegri umfjöllun um þennan samstöðuviðburð ungmennanna.
Kvennablaðið fjallaði um mótmæli ungmennanna gegn brottvísun skólasystur sinnar á dögunum. Þann 11. mars birtist ályktun frá réttindaráði nemenda þar sem því var harðlega mótmælt að skólafélaga þeirar, að nafni Zainab, og fjölskyldu hennar skuli brottvísað úr landi. Var í ályktuninni vísað til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið lögleiddur á Íslandi, einkum 3. grein hans, þar sem segir að yfirvöld skuli taka allar ákvarðanir er varða börn með hagsmuni barna að leiðarljósi.



