Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

VG í Reykjavík skora á þingmenn flokksins að standa við loforð um móttöku fleira flóttafólks

$
0
0

Síðdegis á föstudag barst stutt en skýr tilkynning frá stjórn Vinstri grænna í Reykjavík, þar sem flokksfélagið innan borgarinnar skorar á þingmenn flokksins og ríkisstjórn hans, hinu megin Vonarstrætis, að:

„standa við þau fyrirheit sem fram koma í ríkisstjórnarsáttmálanum um að „Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flóttamannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum. Mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar verða lögð til grundvallar og áhersla á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd“.“

Þá segir í áskoruninni að stjórn VGR vænti þess, nú þegar nýr dómsmálaráðherra hefur tekið til starfa, að „við mögulegar breytingar á útlendingalöggjöf verði áhersla lögð á grundvallar mannréttindi, mannúð og alþjóðlegar skuldbindingar“.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images