Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kvennablaðið leggst í ótímabundinn dvala

$
0
0

Ágætu lesendur,

Kvennablaðið leggst nú í ótímabundinn dvala og af því tilefni viljum við þakka lesendum fyrir samfylgdina. Kvennablaðið vefmiðill hóf göngu sína í nóvember 2013 og lengst af í ritstjórn Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur en hún endurvakti blaðið sem langamma hennar Bríet Bjarnhéðinsdóttir stofnaði árið 1885 og ritstýrði í 25 ár.

Undirritaðar, forsvarsmenn Kvennablaðsins, vilja á þessum tímamótum þakka öllum þeim fjölmörgu blaðamönnum og pennum sem lagt hafa blaðinu lið í launaðri og ólaunaðri vinnu og ber þá að telja sérstaklega Hauk Má Helgason sem ritstýrt hefur blaðinu síðustu misserin, Evu Hauksdóttur,  Hlín Einarsdóttur, Andra Þór Sturluson, Atla Þór Fanndal, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, Steinunni Ingu Óttarsdóttur, Kristinn Hrafnsson, Kristján Frímann Kristjánsson, Kára Stefánsson, Ingunni Bylgju Einarsdóttur, Einar Steingrímsson, Anton Helga Jónsson, Báru Halldórsdóttur og Tobbu Marinósdóttur.

Bestu þakkir fá einnig þeir fjölmörgu sem hafa skrifað greinar í blaðið og sent okkur ábendingar um efni  og efnistök á undangengnum sex árum sem og prófarkalesarar þeir sem hafa lagt blaðinu lið.

Hjartans þakkir fá þeir Þorsteinn Þorsteinsson, Einar Aðalsteinsson vefhönnuður, Kristján Steinarsson leynivinur (blessuð sé minning hans) og Þorvaldur Sverrisson fyrir stuðning á trylltum stundum.

Við viljum að lokum benda öllum greinarhöfundum Kvennablaðsins að afrita efni sitt ef þeir þess kjósa á allra næstu dögum en eftir um það bil viku verður vefurinn óaðgengilegur.

Við þökkum innilega fyrir samstarfið og samfylgdina  og vonum að þið njótið sumarsins!

Steinunn Ólína & Soffía Steingrímsdóttir

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images