Í Bronx dýragarðinum í New York borg hefur tígrisdýr greinst með Covid-19. Þessu greindi blaðamaður National Geographic, Natasha Daly, frá á Twitter á sunnudagskvöld. Niðurstöður greiningarinnar voru staðfestar af dýralæknum bandaríska landbúnaðarráðuneytisins sama kvöld.
Um er að ræða fjögurra ára gamlan kvenkyns tígur af stofni frá Malakkaskaga í Asíu, sem ber nefnið Nadia. Sýni úr henni var tekið til greiningar eftir að vart varð við einkenni á við hósta og minnkandi matarlyst. Hermt er að fimm önnur kattardýr í dýragarðinum, tveir aðrir tígrar og þrjú afrísk ljón, hafi sýnt sömu einkenni. Gert er ráð fyrir að öll dýrin muni ná heilsu.
Lokað hefur verið í dýragarðinum frá 16. mars, eins og víða annars staðar, vegna yfirstandandi faraldurs.
Tveir hundar og einn köttur hafa áður greinst með veiruna í Hong Kong, en ekki hafa komið fram dæmi þess að ómennsk dýr veikist af völdum hennar, né að mannfólk verði fyrir smiti frá dýrunum. Þar sem möguleg smitferli milli tegunda eru ekki fullrannsökuð hafa þó heilbrigðisyfirvöld ákveðinna landa, t.a.m. í Kanada, mælt með aðgát í umgengni við gæludýr í faraldrinum: handþvotti bæði fyrir og eftir nærveru við þau og matargjafir.






