Ekki er raunhæft að miða aðgerðir gegn Covid-19 faraldrinum við tilkomu bóluefnis, sagði sóttvarnarlæknir á upplýsingafundi almannavarna í dag, fimmtudaginn 9. apríl.
Í viðtali við Viðskiptapúlsinn, hlaðvarp Viðskiptablaðs mbl.is, þennan fimmtudag, sagði Lilja Alfreðsdóttir að umfangsmiklar ferðatakmarkanir verði á landinu þar til bóluefni finnst við kórónaveirunni sem veldur Covid-19. Björn Ingi Hrafnsson, blaðamaður, innti sóttvarnarlækni álits á ummælunum á upplýsingafundi almannavarna sama dag, í ljósi þess hve langt þess getur verið að bíða að bóluefni komi fram. Í því samhengi verið rætt um 18 mánuði sem líklegan tímaramma, þ.e. að bóluefni verði að líkindum ekki tilbúið fyrr en haustið 2021.
„Ég óska þess að ég hafi rangt fyrir mér“
Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, svaraði því til að bóluefni sé ekki raunhæfur kostur, um það ríki of margir óvissuþættir. Á honum mátti skilja að ferðatakmarkanir verði verulegar um nokkra hríð, „einhvers konar takmarkanir á ferðamönnum og Íslendingum að ferðast erlendis“. Sóttvarnarlæknir sagði:
„Í fyrsta lagi varðandi bóluefni, þá held ég að bóluefni sé ekki raunhæfur kostur fyrir okkur. Það tekur bara miklu lengri tíma að búa til bóluefni, rannsaka það, treysta því, vera viss um að það virki vel, það séu ekki aukaverkanir og svo framvegis. Þannig að í mínum huga er það ekki raunhæfur kostur. En ég óska þess að ég hafi rangt fyrir mér í því.
Varðandi hitt, þá hef ég sagt það áður, við höfum verið að beita mjög hörðum aðgerðum hér innanlands og Íslendingar lagt mjög mikið á sig. Ef það þýðir að við bælum niður sjúkdóminn verulega en erum á móti svolítið berskjölduð, þá verðum við að hugsa hvernig við ætlum að takmarka það að veiran komi hingað inn í landið aftur. Það verður ekki gert nema með einhvers konar takmörkunum á ferðamönnum, til dæmis. Eða Íslendingum að ferðast erlendis.“
„Allt sem við erum að gera er íþyngjandi“
Ákveðnar útfærslur og hugmyndir séu í gangi um hvernig það megi gera. Takmarkanirnar verði íþyngjandi „en allt sem við erum að gera er íþyngjandi“. Við hvaða tímapunkt þessum takmörkunum yrði aflétt kom ekki fram í máli sóttvarnarlæknis á fundinum.
Aftur á móti kom fram í svari sóttvarnarlæknis við spurningu frá Erlu Björg Gunnarsdóttur, fréttamanni, að breytan R, sem lýsir útbreiðsluhraða sjúkdómsins, er nú komin undir 1 á Íslandi, sem þýðir að hver smitberi smitar færri en einn annan. Á Íslandi er faraldurinn því, sem stendur, með núverandi inngripum, í rénun.



