Laugardaginn fyrir páska slysaðist ég til að búa til súpu sem sló í gegn. Hún var svo einföld og fljótleg að hvaða vitleysingur sem er getur búið hana til.
Í ísskápnum átti ég poka af gulrótum, eina rauða papriku, einn venjulegan brúnan lauk, hálfan sveran púrrulauksstilk, 3 hvítlauksrif, 1 sæta kartöflu og smávegis af engiferrrót.
Ég flysjaði laukinn, sætkartöfluna, engiferbitann og gulræturnar og svo steikti ég allt klabbið niðurskorið í ólífuolíu og saltaði og pipraði.
Ég sauð 1 L af vatni í potti og leysti upp smávegis af grænmetiskrafti og svo bætti ég léttsteikta grænmetinu út í soðið og sauð í 40 mínútur.
Síðan setti ég súpuna í matvinnsluvél, þurfti að gera það í þremur áföngum svo ég myndi ekki sulla út um allt og hakkaði allt saman. Sauð súpuna svo áfram stutta stund og saltaði aðeins og pipraði þar til að ég var sátt.

Til að fegra og bragðbæta súpuna ristaði ég möndlur í chili, hunangi og smjöri og reif niður sítrónu og lime börk og hrærði saman við sýrðan rjóma. Síðan átti ég nokkrar kóríanderdruslur sem fengu að vera með fyrir augað og bragðlaukana.
Með súpunni bar ég fram ósætt og hveitilaust heimabakað bananabrauð.





