Í dag, þriðjudaginn 14. apríl 2020, á 40. degi neyðarstigs Almannavarna, var ekki haldinn stöðufundur kl. 14, samkvæmt venju, heldur kom þríeykið fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu kl. 12, ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Á fundinum voru kynnt fyrstu skref í áætlun stjórnvalda um afléttingu samkomuhafta, sem boðuð hafa verið 4. maí.
Við fylgdumst með fundinum og miðluðum efni hans í beinni ritsendingu hér að neðan. Sjá nánar í frétt af fundinum, hér.






