Þetta bananabrauð þurfa allir að kunna að búa til því það er svo fáránlega einfalt og fljótlegt. Þetta brauð er upplagt að baka ef þið eigið nokkra banana sem mega muna fífil sinn fegri.
Stappið saman þrjá banana og setjið í skál, því næst fara 3 egg, 2 bollar af haframjöli og einn af möndlumjöli /eða glútenlausu hveiti, /nú eða bara venjulegu hveiti, 1/2 bolli púðursykur eða Sukrin, 2 matskeiðar af kanil og 1/4 bolli ólífuolía og 1 tsk lyftiduft í skálina og hræra allt saman. Skellið í smurt sandköku- eða brauðform og bakið í 28-35 mín á 180.

Það má bæta í brauðið appelsínuberki eða sítrónuberki til að bragðbæta og svo er stundum gott að setja í deigið smávegis af muldum valhnetum eða möndlum ef það sé stuð!
Best er brauðið heitt með smjöri!





