Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stjórnvöld tryggja flug frá Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum

$
0
0

Upp úr kvöldmatarleyti á miðvikudagskvöld gaf Utanríkisráðuneytið út tilkynningu um endurnýjaðan samning Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins við Icelandair. Í tilkynningunni er ekki greint frá innihaldi samningsins að öðru leyti en því að á næstunni verður flogið milli Íslands og þriggja borga í þremur löndum: flogið verður til og frá Boston í Bandaríkjunum, til og frá London í Bretlandi og til og frá Stokkhólmi í Svíþjóð. Flugin eru á tímabilinu 16. apríl til 3. maí.

Icelandair mun ekki fljúga til annarra áfangastaða á tímabilinu.

Tilkynningin öll, eins og hún birtist á Facebook-síðu ráðuneytisins, er svohljóðandi:

„Samkvæmt endurnýjuðum samningi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Icelandair er flugáætlun þeirra með eftirfarandi hætti með fyrirvara um breytingar:

Boston:16., 18., 23., 25., 30. apríl og 2. maí
London: 19., 22., 24., 26., 29. apríl og 1. og 3. maí
Stokkhólmur:18. og 25. apríl og 2. maí

Engin önnur flug eru á áætlun Icelandair á þessu tímabili. Eingöngu verður flogið til og frá þessum þremur borgum.

Við minnum á fyrri leiðbeiningar Icelandair fyrir þá sem eiga bókaða miða á þessu tímabili:

Farþegar fá tölvupóst frá Icelandair ef flug þeirra er fellt niður um leið og Icelandair vinnur áætlunarbreytingar sem eru sem stendur unnar með u.þ.b. 7 daga fyrirvara, í þeim pósti er viðskiptavinum gefinn kostur á að sækja um ferðainneign.

Þar sem ekki allir farþegar eru með réttar upplýsingar (netfang eða símanúmer) í bókun mælum við alltaf með að byrja á að skoða „umsjón með bókun“ á Icelandair.is, fara yfir hvort netfang og símanúmer séu rétt skráð þar er einnig hægt að skoða stöðu á flugi og breyta flugi.

1. Ef flugið þitt hefur verið fellt niður og þú ætlaðir ekki að ferðast þá stendur þér til boða að þiggja ferðainneign eða endurgreiðslu. Þá mælum við með að nýta hlekkinn sem fylgir tölvupóstinum sem berst frá okkur. Hafir þú ekki fengið póst frá okkur má sækja um ferðainneign eða endurgreiðslu hér: https://www.icelandair.com/…/hafdu-samband/sendu-okkur-linu/

2. Ef flugið þitt hefur verið fellt niður og þú ætlaðir að ferðast með okkur en hefur ekki fengið nýja flugáætlun senda þá bendum við á að hægt er að breyta bókun í „umsjón með bókun“ á vefsíðu okkar eða fylla út beiðni hér: https://www.icelandair.com/…/hafdu-samband/sendu-okkur-linu/ Einnig veitir Þjónustuver okkar aðstoð við endurbókun.

3, Ef flugið þitt hefur ekki verið fellt niður og þú ætlar ekki að ferðast þá mælum við með því að þú aflýsir fluginu þínu með því að smella hér og fylla út beiðni um annaðhvort ósk um að breyta eða afbóka bókun: https://www.icelandair.com/…/hafdu-samband/sendu-okkur-linu/

4. Ef flugið þitt hefur ekki verið fellt niður og þú finnur ekki upplýsingar um það á listanum hér fyrir neðan en þú ætlar að ferðast þá bendum við á að þjónustuver Icelandair aðstoðar við að skoða hvaða valmöguleikar eru í boði fyrir þig en athugið að framboð út um allan heim er af mjög skornum skammti.

Þjónustuver Icelandair er opið alla daga frá 09:00 -17:00 og er símanúmerið 5050100.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images