Heiða Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur skrifar:

Ég man þegar ég fékk fyrsta ávísunarheftið mitt, fannst ég orðin ægilega fullorðin og ég stílaði nær alltaf á handhafa. Ég þurfti reyndar að muna að skrifa á hvítu stuttu blöðin sem lágu þarna inni á milli uppá hvað hver ávísunin var og síðan var bara að leggja saman og passa að ég færi ekki fram yfir á heftinu. Ef ég færi yfir þá myndi ég hreinlega geta lent í fangelsi, það sagði pabbi allavegana og ég tók hann trúanlegan og vandaði mig voða mikið að skrifa ekki út gúmmí-tékkann svokallaða. En samkvæmt Íslenskri nútímamálsorðabók stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum þá þýðir orðið „gúmmí-tékki“ innistæðulaus ávísun. Þetta vita auðvitað margir sem eru eldri en tvævetur en það að vera eldri en tvævetur þýðir að maður sé orðinn fullorðinn og ekki alveg reynslulaus.
Fullorðin er ég og ekki alveg reynslulaus þannig að þegar ég settist niður og rýndi í kjarasamninginn sem okkur hjúkrunarfræðingum er boðinn var ég viðbúin því að hann gæti verið flókinn og hægt að túlka hann á ýmsa vegu. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum, flækjustigið er á háu stigi svo um munar. Nú getum við hjúkrunarfræðingar togað hann og teygt og ýmist sagt hvor öðrum að skrifa undir eða að harðneita að skrifa undir. Þarna fara hlutir inn og þarna fara hlutir út. Við erum beðin að halda trúnað við samninganefndina og ræða samninginn bara í lokuðum hópi hjúkrunarfræðinga. Ég virði það og ætla mér ekki að fara út í einstök atriði samningsins hér þó svo að mér sýnist að einhverjir fjölmiðlar hafi nú þegar fengið eintak af honum í hendurnar. Það er svo allt önnur ella afhverju þarf að ríkja svona mikil leynd um hann? Ég hefði talið að öll umræða og síðan upplýst samþykki myndi leiða til sem bestrar niðurstöðu en hvað veit ég?
Ég treysti formanni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem getur ekki gert annað en mælt með þessum samning, þetta var það sem hægt var að kreista út úr mjög vondri stöðu og til að einhver hreyfing komist á málin. Það þurfti að bera „eitthvað“ á borð fyrir okkur svo við vitum hvað er í boði.
En vá að þetta sé það sem skuli vera í boði eftir þreifingar síðustu ára og ekki síst síðustu daga, í alvörunni eru þið ekki að grínast með þetta? Hjúkrunarfræðingar hafa svo sannarlega sýnt fram á að þeirra sé þörf nú sem aldrei fyrr og það er að mínu mati ekki bara hægt að biðja okkur um að geyma óútfyllta ávísun þangað til í maí 2021 og vonast síðan til að þegar hún tekur gildi að þar sé að finna óútfylltan tjékka sem hægt verði að taka út úr Gleðibankanum.





