Í dag kemur fram í tilkynningu stjórnarráðsins að ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hafi ákveðið að 15 verkefni, til viðbótar við þau 33 verkefni sem tilkynnt var að fengju styrk úr sjóðnum í mars hljóti nú brautargengi. Um er að ræða verkefni víðsvegar um landið sem sóttu um í sjóðinn við síðustu úthlutun en náðu ekki fram að ganga.
Stærstur hluti úthlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. það er Langanesbyggð með verkefnið Hafnartangi á Bakkafirði –
áningarstaður við ysta haf 30.000.000, Norðurþing með verkefnið Bifröst við Heimskautsgerði -velkomin 35.000.000 og Akureyrarbær 21.485.000 fyrir stígagerð og brúun í fólkvangnum á Glerárdal frá bifreiðastæði að Lamba (skálaferðafélags Akureyrar).
Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi. Í fréttatilkynningu kemur fram að haft verði samband við umsækjendur um framkvæmd verkefna á næstunni.
Fyrirtækin eru: Hjarðarhagi ehf, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Akureyrarbær, Langanesbyggð, Norðurþing, Sveitarfélagið Hornafjörður, Vestmannaeyjabær, Fannborg ehf, Katla Jarðvangur ses., Skálholt, Suðurnesjabær, Eyja-og Miklaholtshreppur og Dalabyggð.
Skrollið og skoðið upplýsingar um verkefni og styrkupphæðir hér að neðan.
| Umsækjandi | Upplýsingar um verkefnið | Landsvæði | Styrkupphæð |
| Hjarðarhagi ehf | Torfhúsin í Hjarðarhaga: Bætt aðgengi fyrir ferðamenn. | Austurland | 1.243.100 |
| Skógræktarfélag Reykjavíkur | Tengileið Mógilsá – Kollafjarðará | Höfuðborgarsvæðið | 17.000.000 |
| Akureyrarbær | Stígagerð og brúun í fólkvangnum á Glerárdal frá bifreiðastæði að Lamba (skála ferðafélags Akureyrar) | Norðurland eystra | 21.485.000 |
| Langanesbyggð | Hafnartangi á Bakkafirði – áningarstaður við ysta haf | Norðurland eystra | 30.000.000 |
| Norðurþing | Bifröst við Heimskautsgerði – velkomin | Norðurland eystra | 35.000.000 |
| Sveitarfélagið Hornafjörður | Göngu- og hjólastígur milli Svínafells og Skaftafells | Suðurland | 12.000.000 |
| Vestmannaeyjabær | Markviss uppbygging gönguleiðar með vesturströnd Heimaeyjar | Suðurland | 6.180.000 |
| Vestmannaeyjabær | Lagfæringar á gönguleið í Dalfjalli | Suðurland | 13.000.000 |
| Fannborg ehf | Áningarstaður við Gýgjarfoss | Suðurland | 2.412.620 |
| Katla Jarðvangur ses. | Aukið öryggi við útsýnisstopp hjá Eyjafjallajökli | Suðurland | 3.512.800 |
| Skálholt | Þorláksleið, gönguleiðaverkefni | Suðurland | 19.000.000 |
| Suðurnesjabær | Aðkomusvæði við Skagagarðinn, nýr ferðamannastaður | Suðurnes | 11.680.000 |
| Suðurnesjabær | Göngustígur frá Kirkju að höfn í Garði | Suðurnes | 3.040.000 |
| Eyja-og Miklaholtshreppur | Útisvæði við Gestastofu Snæfellsness | Vesturland | 7.607.000 |
| Dalabyggð | Minningarreitur um sagnaritarann Sturlu Þórðarson | Vesturland | 16.158.307 |



