Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ófaglært starfsfólk nær hjúkrunarfræðingum í launum á 2 árum

$
0
0

Hjúkrunarfræðingur sem ekki vill láta nafns síns getið segir mikil vonbrigði ríkja innan raða hjúkrunarfræðinga með þá kjarasamninga sem nú er verið að kynna. Samkvæmt þeim tillögum sem liggja fyrir um breytingar á launatöflum muni hjúkrunarfræðingar hækka mun minna í launum en ófaglært starfsfólk á komandi árum.

Ef þetta verður samþykkt eins og þetta lítur út núna þá verða áhrif ljfskjarasamninga þau að ófaglært starfsfólk verður búið að ná okkur í launum eftir 2 ár og það er ekkert verið að bregðast við því. Einu skýringarnar sem við höfum fengið eru þær að láglaunafólk eigi að hækka mest. Við erum þá væntanlega yfir því viðmiði. Okkur finnst ekki sanngjarnt að háskólanám breyti í raun engu um lífskjör okkar en svo spyr maður sig líka hvort ungt fólk sjái tilgang í því að leggja á sig langt og erfitt nám og lifa á lánum í mörg ár, ef það skilar engu í launum. Á þá að flytja inn erlenda hjúkrunarfræðinga sem sætta sig við lág laun eða hlaða enn meiri vinnu og ábyrgð á þá sem nú standa vaktina?

Annað sem kemur illa við marga er að unnir kaffitímar verða ekki greiddir sem yfirvinna en ógfaglært starfsfólk fær uppbót vegna þeirra. Þetta minnkar bilið enn frekar.

Hér er dæmi um útreikninga á launum hjúkrunarfræðings hjá ríkinu og ófaglærðs starfsmanns sem nýtur góðs af lífskjarasamningum. Reiknað er með að báðir séu í fullu starfi með jafn langa starfsreynslu.

Annar hjúkrunarfræðingur sem Kvennablaðið ræddi við segist samþykkja samninginn. Ástæðan fyrir því að hjúkrunarfræðingar hækki minna en ófaglært heilbrigðisstarfsfólk sé ekki sú að samningurinn sé slæmur heldur sú að ófaglærðir njóti góðs af lífskjarasamningum. Ef engir lífskjarasamningar væru fyrir hendi myndi háskólamenntað fólk vera á hærri launum en ófaglærðir hlutfallslega en það myndi ekki þýða að kaupmáttur hjúkrunarfræðinga yrði meiri.

Áður en samningaviðræður hófust var gerð könnun á viðhorfum félagsmanna til þess hvar áherslur skyldu liggja. Þar komu fram eindregnar óskir um styttingu vinnuviku og þær kröfur virðast hafa náð fram að ganga. Vaktaálag hefur einnig hækkað. Þá er það nýjung að samkvæmt samningnum fá hjúkrunarfræðingar launað námsleyfi í 10 daga á ári. Meðal annarra breytinga eru þær að orlof fyrnist á einu ári og ekki stendur til boða að ná upp tekjum með því að vinna í vetarfríi.

Á vef hjúkrunarfélagsins má sjá skýringar samninganefndar


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images