Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Frænka Davíðs auglýsir störf í boði en bara fyrir lesendur Morgunblaðsins

$
0
0

Það er eftirtektarvert að LÍN auglýsir einungis hjá Morgunblaðinu þau störf sem eru laus hjá sjóðnum. Heilsíða í dag fyrir fjögur störf. Engin auglýsing frá LÍN er á öðrum miðlum sem hafa tekjur af atvinnuauglýsingum eins og Vísi, Fréttablaðinu og DV. 

Mogginn berst í bökkum svo framlag LÍN til auglýsingatekna Morgunblaðsins hlýtur að hjálpa talsvert til.

Samtryggingin lætur ekki að sér hæða

Framkvæmdastjóri LÍN, Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, er náfrænka ritstjóra Morgunblaðsins svo að það er virkilega falleg frændsemi þarna á ferðinni og ákveðið listfengi í því hvernig hið opinbera ver með öllum tiltækum ráðum Málgagnið. 

Það sætir samt furðu að LÍN skuli eingöngu leita eftir starfskröftum úr röðum lesenda Morgunblaðsins sem eru flestir komnir af fótum fram, geta vart ritað nafnið sitt lengur svo það skiljist og ekki líklegir að endast við þungbæra skrifstofuvinnu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images