Þótt þú talir ekki kattamál er geturðu samt skilið það og bætt þannig samband þitt við kisu. Kötturinn lætur þig vita hvenær er kominn tími til að fara á fætur (eða a.m.k. hvenær kisa finnst það tímabært), hvenær hann vill fá að éta og komast út. Hann gefur til kynna að hann vilji klapp og gælur og lætur vita af því þegar hann er óttasleginn og þegar hann finnur til.
Líkamstjáning kattarins gefur mikilvægar upplýsingar um líðan hans og hugarheim. Augun, hljóðin sem kisa gefur frá sér og það hvernig hún hreyfir rófuna og eyrun eru allt þættir sem segja heilmikið til um ástand hennar. Það er hægt að læra að lesa í þessi merki og fá þannig skýrari hugmynd um það hvað kötturinn er að hugsa.
Raddbeiting og önnur hljóð
Kettir gefa frá sér fjölda mismunandi hljóðmerkja. Þeir mjálma og mala með ýmsum blæbrigðum og það dýpkar skilning okkar að bera kennsl á þau. Þegar kisa mjálmar er hún ekki bara að reyna að vekja athygli þína heldur oft að reyna að segja þér eitthvað sérstakt.
Mjálm
Kettir mjálma við öll tækifæri en með margbreytilegu hljómfalli. Kisi mjálmar til að heilsa, til að gefa fyrirmæli um að þjónn hans eigi að hleypa honum út eða fóðra hann, mótmæla eða vara einhvern við, t.d. að frábiðja sér snertingu að viðlögðu klóri. Einnig til þess tilkynna eitthvað, t.d. „ég veiddi mús handa þér“. Það er jafnvel til í dæminu að kettir mjálmi við sjálfa sig. Sá sem býr með ketti lærir venjulega að greina af mjálminu hvers eðlis skilaboðin eru en ef það dugar ekki til þá hjálpar að skoða líkamstjáningu.

Langdregið, vælandi mjálm bendir til þess að kisi eigi eitthvað bágt. Hann finnur kannski til, er lasinn eða hefur lokast inni. Vanræktir kettir eiga það til að væla af einskærri óhamingju. Breima kettir gefa frá sér mjög hátt og langdregið væl og ógeltir kettir sem finna ekki maka væla oft af eirðarleysi þegar þeir eru breima.
Gagg og glamur
Snöggir, hvellir skrækir og gagghljóð gefa til kynna að kötturinn vilji þér eitthvað. Læðan notar slík hljóð til að kalla á kettlingana. Þegar köttur gaggar á manneskju vill hann líklega láta fylgja sér, t.d. til að sýna þér eitthvað eða teyma þig að tómum matardalli.
Glamur, eða taktföst skrölthjóð mynduð með tönnum, tengjast veiðieðli kattarins. Þeir sem búa með köttum kannast vel við þá venju kisa síns að sitja gaggandi úti í glugga og glamra tönnum óvenju mikið þegar hann sér fugla fyrir utan. Talið er að hvötin til að skella skoltum við þessar aðstæður tengist hvöt kattarins til að bíta bráðina á háls.
Gagg og glamurhljóð heyrast oft í samræðum katta sín á milli.
Mal
Mal er venjulega vellíðunarmerki. Kettir mala þegar þeir eru ánægðir, þegar þeir hvílast og stundum á meðan þeir éta. Það kemur þeim sem ekki umgangst ketti að ráði því stundum á óvart að mal getur mat einnig verið merki um kvíða eða aðra vanlíðan. Kötturinn malar þá sjálfum sér til huggunar, eins og fólk tekst á við vanlíðan með því að syngja eða telja kjark í sjálft sig.
Urr og hvæs
Urr og hvæs gefa til kynna að kötturinn sé reiður, pirraður eða hræddur. Köttur sem hvæsir eða urrar getur verið í árásarham eða talið sig þurfa að verjast. Láttu hann í friði.
Líkamstjáning
Ef köttur teygir rassinn upp á við eða veltir sér á bakið þegar þú snertir hann, merkir það að hann treystir þér og vill láta strjúka sér. Ef hann víkur sér undan er hann ekki í stuði fyrir knús. Ef hann setur upp kryppu er hann reiður eða hræddur eða vill af öðrum ástæðum alls ekki hleypa þér nálægt sér. Ef hann liggur á bakinu og tekur skyndilega upp á því að urra eða gefa frá sér önnur varnaðarhljóð skaltu hætta öllum gælum.
Eyru
Ef kisa sperrir eyrun þannig að þau vísa fram og upp á við er hún á varðbergi eða áhugasöm. Ef hún bærir eyrun er hún sennilega að hlusta eftir lágum eða ógreinilegum hljóðum. Köttur sem leggur eyrun aftur er pirraður og sennilega óttasleginn.
Augu
Ef sjáöldin eru samandregin getur verið að kötturinn sé í árásarhug en ef önnur merki benda ekki til þess er hann líklega í góðu jafnvægi. Birtustig gæti þá skýrt það hversvegna augnsteinarnir virðast óvenju litlir.

Þanin sjáöldur benda til þess að kötturinn sé ör. Það getur verið bæði jákvæð og neikvæð líðan. Kannski hefur hann áhyggjur af einhverju eða þá að það er leikur í honum. Horfðu eftir öðrum merkjum ef þú ert óviss.
Rófa
Ef rófan er bein og slétt er allt með felldu. Ef kisi sperrir rófuna hefur eitthvað vakið áhuga hans. Ef hann setur rófuna upp í loftið en ýfir hana ekki er hann glaður, ef hann hreyfir hana eilítið vill hann frekari samskipti, kannski að fá þig til að leika við sig. Ef rófan stendur beint upp í loftið og titrar dálítið er hann spenntur og ánægður, þetta gerist t.d. oft þegar hann á í vændum harðfisk eða annað góðgæti og eins sést þetta hjá köttum sem eru að undirbúa mökun.
Ef kötturinn ýfir feldinn er hann reiður eða hræddur og oftast ýfir hann rófuna fyrst. Ef rófan stendur beint upp í loftið og hann ýfir hana lengi er hann að undirbúa árás. Ef hann leggur rófuna niður er hann óöruggur eða kviðinn og ef hann ýfir hana líka er hann hræddur.
Köttur sem sveiflar rófunni taktfast hefur eitthvað vakið athygli hans. Ef hann hættir ekki fljótlega er hann líklega fúll eða gramur á meðan hann sveilar henni hægt en því hraðar sem hann sveiflar henni því líklegra er að hann sé að verða reiður.

Ástleitni
Hjúfur
Þegar köttur nuddar sér upp við þig finnst þér sennilega eðlilegast að túlka það sem ástarjátningu. Það má svosem til sanns vegar færa, hann vill athygli þína og gælur, sérstaklega þegar hann „kyssir þig“ með þvi að nudda kömpunum upp við þitt og hendur. En hann er líka að merkja þig sem sína réttmætu eign. Hann nuddar sér nefnilega líka upp við húsgögn og aðra hluti á heimilinu. Með því skilur hann eftir lykt sína og þetta eru skilaboð til hugsanlegra innrásarkatta um að halda sig á mottunni.
Þæfing
Þegar kötturinn nýr þig með þófunum er hann að leita huggunar eða tjá vellíðan. Oft sjúga kettir eyru eða vanga mannvina sinna um leið og þeir þæfa fatnað eða hár. Þetta er skylt því þegar kettlingar á spena þæfa kvið móður sinnar, það er leið náttúrunnar til að auka mjólkurflæðið og kötturinn tengir það að þæfa við að njóta ástar og öryggis.



