Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sérfræðingar spá tvöfalt fleiri dauðsföllum en Trump heimtar „frelsun“ ríkja

$
0
0

Í glærupakka sem New York Times komst yfir kemur fram að CDC, Miðstöð sjúkdómaeftirlits og sjúkdómavarna, spáir mun fleiri dauðsföllum af völdum veirunnar en stjórnvöld hafa sagst gera ráð fyrir, og að útbreiðsla hennar sé enn í verulegum vexti. Spálíkan CDC gerir ráð fyrir um 3.000 dauðsföllum á dag þann 1. júní. Það er næstum tvöfalt á við dagleg dauðsföll í Bandaríkjunum núna, en þau eru um 1.750.

Líkanið gerir ráð fyrir verulegri fjölgun nýrra smita um miðjan maí og að sú fjölgun haldi áfram svo langt sem líkanið nær. Með þessari fjölgun verði ný smit orðin nálægt 200.000 á dag en þau eru 25-35.000 þessa dagana. 

Spálíkan CDC gerir ráð fyrir verulegri fjölgun dauðsfalla upp úr miðjum maí.

Líkanið spáir því að áhrif þeirra tilslakana á samkomubanni sem Donald Trump hefur barist fyrir af mikill hörku muni koma fram á seinni hluta maímánaðar og valda hrinu nýrra smita og dauðsfalla sem ekki sér fyrir endann á.

Hrina nýsmita hefst um miðjan maí skv. líkani CDC. Athugið að grafið er á lógaritmaskala og ferlar mun brattari en sést við fyrstu sýn.

Ekki er neinn bilbug að finna á forsetanum ef marka má Twitterskeyti dagsins. Hann segist vera að fá „loksins frábæra dóma“ fyrir frammistöðuna:

Enn undarlegri er sú kenning forsetans, sem fram hefur komið áður, að Bandaríkin leiði allan heiminn í skimun kórúnusmita. Hann heldur því fram í dag, eins og fyrir nokkrum dögum síðan, að Bandaríkin hafi framkvæmt fleiri skimanir en öll lönd heimsins samanlagt. 

Þetta er furðuleg staðhæfing og víðsfjarri sannleikanum. Bandaríkin hafa framkvæmt samtals 7.123.222 skimanir. Það er svipað og skimanir Rússa og Þjóðverja samanlagt (6.850.000), eða heildarfjöldi skimana á Spáni, Ítalíu, Bretlandi, Frakklandi, Íran og Perú (7.313.647). Bandaríkin standa fjölda annarra ríkja langt að baki í fjölda skimana miðað við höfðatölu og eru þar aðeins í 41. sæti í heiminum. 

CDC lýsir einnig verulegum áhyggjum af ógn veirunnar við matvælaöryggi í landinu. Smit hafa greinst í sláturhúsum víða um landið og er úrval kjötvöru þegar tekið að minnka í mörgum verslunum, um leið og verð fer hækkandi. 

Landbúnaður í Bandaríkjunum er mjög skilvirkur, með tiltölulega fáum risastórum einingum sem annast slátrun og pökkun afurða frá mjög víðfeðmum svæðum. Þær eru keyrðar á fullum afköstum allan sólarhringinn og má ekki mikið út af bregða til að upp komi skortur. Svipað gildir um grænmeti og ávexti; þar eru garðyrkjubú sett upp til að rækta fastar pantanir fyrir keðjur verslana og veitingastaða og eiga erfitt með að mæta gerbreyttum aðstæðum. Bú sem ræktar eingöngu fyrir skyndibitastaði á hvorki vöru né pakkningar sem henta í verslanir og neyðist einfaldlega til að farga framleiðslunni ef veitingastaðirnir loka.

Sækja glærupakka CDC


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images