Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Rússneskir læknar detta út um glugga

$
0
0

Læknar í Rússlandi halda áfram að detta út um glugga og eru nú orðnir þrír á síðustu tveimur vikum. Tveir létust í lendingu en sá þriðji liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Lögregluyfirvöld segjast vera með málin í rannsókn.

Nýjasta tilfellið er Alexander Sjúlepov frá Voronesh, sem datt út um glugga á annarri hæð eftir að hafa tjáð sig óvarlega um skort á búnaði og að vera þvingaður til að halda áfram að sinna sjúklingum þrátt fyrir að vera smitaður af kórónuveiru. Hann var lagður inn vegna sjúkdómsins og var á batavegi þegar glugginn varð á vegi hans og hann kaus að því er virðist að stytta sér aldur. Í millitíðinni hafði hann dregið fyrri staðhæfingar sínar til baka.

Alexander Sjúlipov t.v og samstarfsmaður hans Alexander Kosyakin tóku upp myndskeið þar sem þeir sögðu að það væri verið að neyða þá til að vinna þrátt fyrir að vera með Covid-19 sjálfir (Ljósmynd: Alexander Kosyakin)

Natalya Lebedeva, yfirlæknir bráðamóttöku í þjálfunarstöð fyrir geimfara skammt fyrir utan Moskvu gætti sín ekki á opnum glugga þann 24. apríl, datt út um hann og lést. Frekari fréttir af því slysi liggja ekki á lausu en gefið var í skyn að hún hefði stytt sér aldur vegna ásakana um að hafa smitað samstarfsfólk sitt af kórónuvírus.

Þann 1. maí lést Elena Nepomnyaskaja, yfirlæknir í Krasnojarsk eftir vikudvöl á gjörgæslu. Hún er sögð hafa dottið út um gluggann á fundi með fulltrúum heilbrigðisyfirvalda, sem vildu nota spítalann sem neyðarmóttöku veirusjúklinga. Elena var mótfallin þeim áætlunum og taldi spítalann vanbúinn.

CNN greinir frá og The Moscow Times greinir frá


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images