Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hattar tryggja fjarlægð á milli barna í Kína

$
0
0

Aldagömul hattatíska hefur gengið í endurnýjun lífdaga á meðal skólabarna í Kína vegna Covid-19.

Barnaskóli í Hangzhou, sem er í austurhluta landsins, sótti innblástur í hatta sem ráðamenn notuðu á Song keisaratímabilinu sem stóð yfir frá 960-1279. Tilgangurinn er að venja börn við að halda hæfilegri fjarlægð hvert frá öðru.

Nemendur bjuggu til hattana sína heima með þeim fyrirmælum að börð hattanna myndu tryggja að lágmarki metra á milli barna.

Sagan segir að fyrsti keisari Song tímabilsins hafi skipað undirmönnum sínum að klæðast höttum með löngum útstandandi flipum svo þeir ættu erfiðara með að hvísla, án þess að til þeirra heyrðist.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images