Árið 2018 stóðu læknar í Hong Kong frammi fyrir ráðgátu. Sjúklingur á sextugsaldri sem hafði undirgengist lifrarskipti sýndi öll einkenni lifrarbólgu E án þess að veiran sem veldur henni, (HEV) fyndist í blóði hans.
Einkenni lifrarbólgu E eru auk bólgu í lifur og skertrar lifrarstarfsemi, sótthiti og gula. Til eru fjögur afbrigði af veirunni sem leggjast á mismunandi dýrategundir og fram að þessu var aðeins vitað til þess að eitt þeirra bærist í menn.
Þar sem sjúklingurinn svaraði ekki venjulegu lifrarbólguprófi var skimað fyrir þeim afbrigðum sem leggjast á dýr og í fyrsta sinn í sögunni greindist manneskja með það afbrigði veirunnar sem veldur lifarbólgu í rottum. Þetta reyndist því miður ekki einangrað tilvik og síðan þá hafa 10 sjúklingar til viðbótar greinst með rottuveiruna, sá síðasti í lok apríl. Talið er mögulegt að fjöldi manns sé með veiruna án þess að hún hafi verið greind.
Smitleiðin er ráðgáta
Það afbrigði lifrarbólguveiru sem venjulega leggst á menn smitast með saurgerlum. Samkvæmt WHO er algengast að sýkilinn berist í menn með menguðu neysluvatni. En rottuveiran er ráðgáta, enginn veit hvernig fólk sýkist af henni. Uppi eru kenningar um að hún kunni að hafa borist með menguðu vatni eins og það afbrigði hennar sem almennt leggst á menn eða að fólk á annan hátt hafi komist í líkamlega snertingu við veiruna en ekki hefur verið sýnt fram á það.
Það eykur enn á undrun sérfræðinga að ólíkleg er að sá síðasti sem sýktist hafi komist í snertingu við rottuveiruna. Það voru engar rottur eða rottuskítur á heimili hans, enginn annar á heimilinu hefur nein einkenni of hann hefur ekkert ferðast nýlega. Maðurinn er enn á spítala.
Rannsóknir á veirunni halda áfram en sáralítið hefur miðað frá 2018. Það sem mestum áhyggjum veldur er sú staðreynd að ekki er vitað hvernig veiran berst í menn og því erfitt um forvarnir. Þótt lifrarbólga E geti verið skæð og valdið varanlegum lifrarskemmdum eru einnig margir sem fá aðeins væg einkenni og þar sem önnur ríki hafa ekki skimað fyrir þessu rottuafbrigði veirunnar er ekki hægt að útliloka að hún hafi dreifst víðar.





