Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ertu að leita þér að vinnu? Airbnb býður fólki að gerast leiðsögumenn og kennarar í gegnum fjarfundabúnað

$
0
0

Airbnb er ekki bara útleiga húsnæðis því vefurinn hefur í langan tíma boðið fólki að hafa aukatekjur í gegnum vefinn með því að bjóða ferðalöngum upp á að reyna eitthvað nýtt, svo sem eins og að sækja námskeið eða leiðsögn í einhverju skemmtilegu meðan það er að ferðast á nýjum stað í nýju landi.

Á tímum Covid-19 hefur Airbnb bætt um betur því nú getur hver sem er sem hefur upp á eitthvað skemmtilegt að bjóða boðið upp á fjarstund og selt þátttakendum aðgang að upplifun í gegnum netið þar sem notast er við fjarfundabúnaðinn ZOOM.

Um þessar mundir eru rúmlega 200 fjarstundir í boði í öllum heimshornum en samkvæmt fréttum bætast margar stundir við í hverri viku að undangenginni generalprufu þar sem viðkomandi sem ætlar sér að selja fjarstund gerir æfingu sem Airbnb samþykkir eða hafnar.

Ef hugmyndin nær í gegn um umsóknarsíuna er fólk að rukka að meðaltali 10 dollara fyrir hvern einstakling sem sækir fjarstundina svo það eru ágætis tekjumöguleikar í þessu ef þú hefur upp á eitthvað skemmtilegt að bjóða og margir vilja slást í hópinn.

Ekki hljóta allar hugmyndir náð fyrir augum Airbnb

Hugmyndirnar þurfa að vera vel ígrundaðar svo að þær þyki boðlegar. Kona nokkur ætlaði sér að bjóða upp á að fólk gæti horft á köttinn hennar í klukkutíma en því var hafnað af stjórnendum Airbnb. Ganga um Chernobyl þar sem villtum hundum er gefið að borða hlaut hinsvegar náð stjórnenda Airbnb.

Það kennir ýmissa grasa í tilboðum af þessu tagi á Airbnb. Matreiðlsukennsla, göngutúrar, íhugun og alls kyns listnám sem krefst verklegrar þáttöku þeirra sem sækja námskeiðið.

Með þessum möguleika sem Airbnb býður upp á gætu leynst tækifæri fyrir leiðsögumenn sem eru atvinnulausir um þessar mundir og gætu sem hæglegast boðið fólki að ferðast um landið og landsvæði í gegnum fjarfundabúnað.

Einnig mætti hugsa sér að bændur í ferðaþjónustu gætu boðið upp á fjarstund á sínum bæ, þar sem kennt er t.d að baka íslenskar pönnukökur. Fuglaskoðun á Íslandi. Sauðburður í sveit. Sláttur og slátur. Reykjavík að nóttu til. Hvalaskoðun, íslensk hönnun …

Listamenn gætu hæglega boðið upp á kennslustundir í einhverju sem auðvelt er að miðla og þar fram eftir götunum.

Nú er bara að láta hugann reika og spyrja sig hverju hægt er að miðla sem gæti verið skemmtilegt fyrir fólk sem hefur á þessum tíma ekki tækifæri til að heimsækja Ísland í eigin persónu og nota tækifærið og skapa spennu fyrir einhverju ákveðnu sem seinna meir laðar vonandi að raunverulega ferðamenn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images