Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heimilslaust fólk í Bretlandi ákært fyrir sóttvarnarbrot

$
0
0

Sultan Monsour, 45 ára heimilislaus maður í Liverpool hefur verið ákærður fyrir að vera utandyra án fullnægjandi ástæðu, og brjóta þannig gegn varúðarreglum vegna kórónuveirunnar.

Samkvæmt heilbrigðisreglugerð er bannað að vera á ferli í Bretlandi án fullnægjandi ástæðu þar til ákveðnar tilslakanir taka gildi á morgun, miðvikudag. Fullnægjandi ástæða er t.d. að kaupa nauðsynjar til heimilisins og sækja sér heilbrigðisþjónustu. Einnig er heimilt að fara út til að hreyfa sig en ekki er reiknað með að fólk nýti þann tíma til að sitja og sóla sig.

„Þeir hafa gert það ólöglegt að vera á ferli án fullnægjandi ástæðu en það er tekið fram í lögunum að þessar takmarkanir eigi ekki við um heimilislausa“ segir herra Monsour sem undrast þá stöðu sem hann er kominn í.

Málið var tekið fyrir hjá héraðsdómara í Westminister á mánudag.

Herra Monsour, sem er óstaðsettur í hús, var handtekinn í nágrenni aðal-lestarstöðvar Liverpool þann 5. maí. Í máli saksóknara kom fram að hann hefði í fyrstu gefið lögreglu upp heimilisfang en síðar viðurkennt að vera heimilislaus. Hann hefði fengið viðvörun tíu dögum áður þegar lögreglan sá hann ferðast með lest og þegar sami lögreglumaður sá hann aftur á flandri, hefði þolinmæði hans verið á þrotum.

Dómari lýsti undrun sinni á því að heimilislaus maður hefði verið ákærður fyrir að yfirgefa heimili sitt. Saksóknari benti þá á að herra Monsour hefði reyndar gefið upp heimilisfang. Dómarinn benti þá aftur á að samkvæmt lögregluskýrslu hefði ástæða handtökunnar verið sú að maðurinn hefði brotið gegn smitvarnarreglum með því að vera heimilislaus. Hann bauð saksóknara að skoða skýrsluna og íhuga þann möguleika að falla frá saksókn.

Saksóknarinn tók sér klukkustundar umhugsunarfrest en niðurstaða hans varð sú að halda málinu til streitu.

Þetta er ekki eina málið þar sem heimilislaust fólk í Bretlandi hefur verið ákært fyrir brot gegn sóttvörnum. Einnig eru þess nokkur dæmi að fólk hafi verið ranglega sakfellt, á grundvelli laga sem eiga aðeins við um fólk sem grunur leikur á um að sé sýkt af veirunni.

Herra Monsour var leystur úr haldi án tryggingar, fram að aðalmeðferð sem hefst 22. júní.

Við sama tækifæri var hann dæmdur til 200 punda sektar vegna brots sem tengist meintu sóttvarnabroti ekki; vopnaburð á almannafæri. Tildrög þess voru þau að hann hafði í vörslu sinni klaufhamar þegar hann var gripinn glóðvolgur á umferðarmiðstöð í febrúar.

The Independent greindi frá


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images