Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Áfengisstríð í uppsiglingu í Reykjavík

$
0
0

Eigendur bara og skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur eru bálreiðir vegna ráðagerða þríeykisins um að halda þeim lokuðum áfram, þrátt fyrir verulegar tilslakanir á samkomubanni. Sumir þeirra hóta að opna þann 25. maí, hvað sem yfirvöld segja.

RÚV greinir frá því að hópur veitingamanna í miðbænum telji verulega að sér vegið með því að leyfa veitingastöðum að hafa opið til 23 á kvöldin, en halda krám, börum og öðrum skemmtistöðum harðlokuðum áfram. Þeir benda á að fólk hópist inn á veitingahús til þess að fá sér í glas og með þessu sé verið sé að mismuna fyritækjum.

Rekstraraðili nokkurra vinsælla kráa í bænum – English Pub, Danske Kro, Lebowski bar, Irishman og Kalda – hótar að opna staðina þann 25. maí hvort sem leyfi fæst til þess eða ekki. Hann segist ekki vilja brjóta lögin, en það sér illskárra að opna og borga sektina en hafa áfram lokað og tapa enn meiru.

Búast má við að lögreglan hafi takmarkaða kímnigáfu fyrir þessari óhlýðni og muni loka öllum opnum stöðum jafnóðum með harðri hendi. Í kjölfarið verði barirnir sektaðir um stórfé og jafnvel sviptir veitingaleyfi fyrir tiltækið.

Þríeykið hefur ekki verið sérlega skýrt um ástæður þess að veitingahús sem selur bæði mat og drykk megi hafa opið, en veitingahús sem selur eingöngu drykk þurfi að sæta samkomumbanni. „Það gefur bara augaleið“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir, spurður út í þetta atriði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images