Tilslakanir ríkisstjórnarinnar og víruspróf þau sem útlendingum verður boðið upp á við komu til landsins eftir 15. júní eru fréttamatur víða um veröld þótt ekki sé liðinn nema sólarhringur síðan tilslakanir voru kynntar.
Ferðalangar jafnt sem fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá sér leik á borði enda voru margir orðnir úrkula vonar um að hingað mætti ferðast eða að hingað kæmu ferðamenn að einhverju ráði í sumar. Margir aðilar í ferðabransanum auglýsa nú þegar af miklu kappi.
Hvort ferðamenn munu þyrpast hingað er ekki gott að segja á þessari stundu. Margar Evrópuþjóðir eiga um sárt að binda vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins og allt virðist vera í fullkominni steik í Bandaríkjunum hvað Covid-19 varðar.
Eftir stendur að það verða alveg örugglega einhverjir sem munu leggja leið sína hingað og það verður þá vonandi einhver sárabót fyrir ferðaþjónustuna sem sá fram á algjörlega dautt sumar miðað við fyrri ár.
Samkvæmt Twitter er skyndilegur fengitími ferðaþjónustunnar genginn í garð.
Fólk og fyrirtæki lýsa ánægju sinni með fréttir frá Íslandi:

(@Xy5Z89)





