Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Komst áfram á verðleikum en efast samt oft um sjálfa sig

$
0
0

Raffia Arshad, kona sem játar Islam og ber höfuðklút (hijab) á almannafæri hefur hlotið skipun í embætti héraðsdómara í Midlands í Englandi. Hún er fyrsta konan sem ber höfuðklút til að gegna stöðu dómara í Bretlandi.

Raiffa sagði í samtali við Metro að sig hefði langað að læra lögfræði frá barnsaldri en hefði velt því fyrir sér hvort innan stéttarinnar væri nokkur sem líktist henni í útliti. Einnig hefði hún haft efasemdir um það hvort kona úr verkamannastétt og sem auk þess tilheyrði kynþáttaminnihluta ætti möguleika á því að spjara sig í heimi lögmanna.

Raiffa segir skipunina stórt skref, ekki aðeins fyrir hana persónulega heldur fyrir allar konur en þó sérstaklega múslímakonur. Hún segist, eftir 17 ára starfs sem lögmaður, enn verða fyrir reglulega fordómum og mismunun.

Raiffa segist vilja stuðla að samfélagi þar sem fjölbreytileiki þrífst og þessvegna hefur hún neitað að losa sig við höfuðklútinn. Þegar hún var boðuð í viðtal vegna umsóknar um námsstyrk árið 2001 ráðlagði fjölskylda hennar henni að mæta ekki með klútinn þar sem það gæti skaðað möguleika hennar á úthlutun. Raiffa lét ekki undan þrýstingunum þar sem hún hafði ekki haft áhuga á lögmannsferli ef hún þyrfti að verða önnur manneskja til þess. Hún fékk styrkinn og segir það hafa verið sér mikil hvatning.

Sérsvið Raiffu er fjölskylduréttur. Hún hefur fengist við mál kvenna sem eru þvingaðar í hjónaband, mál sem varða kynfærabrottnám kvenna og hverskonar mál þar sem reynir á Islamska fjölskyldulöggjöf. Hún hefur einnig komið að ritun lagatexta innan Islamskra fjölskyldulaga.

Þrátt fyrir farsælan feril verður Raiffa mikið vör við fyrirframgefnar hugmyndir um útlit lögmanna. Hún segir fólk sem hún hittir í starfi oftast ganga úr frá því að hún sé skjólstæðingur eða að öðrum kosti túlkur. Þótt hún erfi það ekkert þá endurspegli þessar ályktanir viðhorf samfélagsins.

Raiffa segir eitt af því sem heldur aftur af konum vera blekkingar-heilkennið (Imposter Syndrome). Hún segir vilja til þess hjá dómsýslunni að auka fjölbreytileika en að það sé ekki ástæðan fyrir því að hún var skipuð enda hafi þá ekki legið fyrir að hún myndi bera höfuðklút, hún hafi einfaldlega komist áfram á verðleikum. Þótt hún viti það efist hún mjög oft um sjálfa sig.

Raiffa segist vilja stuðla að því að „rödd fjölbreytileikans fái að hljóma hátt og hvellt“. Hún vonast til þess að verða ungum múslímum hvatning til að hasla sér völl í þeim greinum sem þá langar til, án þess að láta það aftra sér þótt útlit þeirra samræmist ekki staðalmyndinni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images