Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Helgi Seljan húðskammar erfingja „Leynisjóðs“ Júlíusar Vífils

$
0
0

Helgi Vífill Júlíusson, sonur Júlíusar Vífils Ingvarssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, ritar greinarstúf í Fréttablað dagsins. Tilefnið er Samherjaarfurinn og tilgangurinn að því er virðist að reyna að lægja öldur reiði og öfundar sem skollið hafa á blessuðum börnunum. Einnig minnir greinarhöfundur landsmenn á að kerfi gjafakvóta og skattaskjóla er snilld.

Reiði blossaði upp sums staðar í samfélaginu þegar tveir stofnendur Samherja ákváðu að afhenda börnum sínum nær allan hlut þeirra í útgerðinni hér á landi. Öfund lét líka á sér kræla. Við gjöfina urðu erfingjarnir jú með ríkari Íslendingum.

Það má með mildi segja að börnin verði „með ríkari Íslendingum“, því heimanmundur þeirra losar 70 milljarða og teknir eru flóknir snúningar til að forða sem allra mestu undan eðlilegu framlagi til samfélagsins.

Við þessar aðstæður mætti spyrja: Hvers vegna þurfa erfingjarnir að greiða ríkinu fyrir gjöf frá foreldrum sínum?

Burt séð frá helstu álitamálum um erfðafjárskatt er þetta óvenju ósvífin spurning frá eiganda frægs „lífeyrissjóðs“ í skattaskjóli um fall gríðarlegra auðæva af himnum ofan í fang afkvæma Samherja. Sá hrikalegi auður sem þau fá afhentan á einu bretti, án þess að lyfta svo mikið sem litla fingri eða hnefa, er búinn til úr gjöf frá ríkinu. Bókstaflega allur arfurinn er gróði af framseljanlegum aflaheimildum og grágötóttu skattkerfi sem Samherji fékk að skrifa eftir eigin höfði um eigin hagsmuni.

Helga Seljan er ekki skemmt

Helgi Seljan bregst allharkalega við grein Helga Vífils á Facebook. Helgi fjallaði á sínum tíma með eftirminnilegum hætti um sakamál föður greinarhöfundar og fletti nú síðast ofan af mútuhneyksli Samherja í Namibíu með þeim afleiðingum að fjöldi manns situr í fangelsi í því landi á meðan yfirvöld hér mæna vonaraugum á fyrningarklukkuna og vona að fólk hætti bæði að tala og hugsa fyrr en um seinan.

„Í síðustu viku komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi borgarfulltrúi hefði gerst sekur um peningaþvætti þegar hann gaf ekki upp til skatts vel á annað hundrað milljónir króna og nýtti sér svo ávinning þess í eigin þágu, með því að fela peningana í þekktum skattaskjólum.“

„Í dómnum kemur fram að peningarnir hafi upphaflega verið svokölluð kommissjón af bílainnflutningi og sölu. Peningar sem aldrei voru gefnir upp hér á landi, og auðvelt er að færa rök fyrir að hafi valdið því að bílarnir sem fyrirtækið seldi hafi verið seldir Íslendingum fyrir hærra verð, en annars hefði þurft að vera.“

„Sem aftur ætti ekki að koma neinum á óvart. Nákvæmlega svona undanskot hafa oft komið upp hér á landi. Árið 1946 voru 10 af stærstu heildsölum Íslands dæmdir fyrir að stela með þessum hætti undan af innflutningi um allt að 20%, frá því sem eðlilegt var. Í skýrslu Verðlagsráðs sem unnin var og birt árið 1979 var þetta svindl í innflutningi hingað til lands talið valda því að Íslenskir neytendur greiddu 5% prósentum hærra verð en eðlilegt væri.“

„Það að skjóta undan hagnaði og skilja eftir óskattlagðan erlendis er í raun meginstef íslenskrar efnahagssögu. Súrálsmálið, Kaffibaunamálið, Heildsalamálið, Síldarmálin ofl ofl skandalar af sama toga vitna um það. Þó ekki væri nema þess vegna er sú staðreynd að íslensk skattayfirvöld hafi hingað til skilað auðu í rannsókn slíkra mála, og borið við ýmist þekkingar- eða fjárskorti, enn furðulegri. (Nú er rafmagnslaust hjá Skattinum, ofan í kaupið)“

„En allt að öllu
Aflandsfélag borgarfulltrúans fyrrverandi og sjóðirnir sem það situr enn á, eru reyndar ekki bara eign hans (Lífeyrissjóðurinn sem hann kallaði leynisjóðinn, sem hann lúrði á, á akkúrat sama tíma, og hann sat um margra ára skeið í stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar) því í dómi Landsréttar og áður héraðsdóms kemur fram að bæði borgarfulltrúinn og fullorðin börn hans tvö, séu skráð fyrir sjóðnum.“

„Það var því að líkindum meðalhóf í bland við manngæsku, sem varð til þess að ákæruvaldið dró ekki börnin fyrir dóm vegna málsins. Sama ástæða og ekki var gripið til þess ráðs að beita úrræðum eins og frystingu eigna við rannsókn málsins, eins og nú er þó gert gagnvart pólskum hjónum sem sæta ákæru fyrir peningaþvætti.“

„Því eins og lesa má um í tilfinningaþrungnum pistli annars þeirra, aftan á Markaðnum, fylgiblaði Fréttablaðsins, í morgun, er það að afhenda börnum sínum digra sjóði „falleg gjörð“ og eðlilega spurt hvers vegna „erfingjar þurfi að greiða fyrir gjöf frá foreldrum sínum?““


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images