Auglýsingastofan Jónsson & Le’macks er tilnefnd til Cannes-verðlauna í hönnunarflokki fyrir umbúðir sem stofan hannaði fyrir Norðursalt.
Cannes-verðlaunin (Cannes Lions) eru virtustu og stærstu auglýsingaverðlaun heims. Í ár voru innsendingar í keppnina tæplega 40 þúsund, alls staðar að úr heiminum.
Umbúðirnar fyrir Norðursalt hafa unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga á Íslandi, bæði í FÍT keppninni og Lúðrinum, og eru nú meðal fárra útvaldra í sterkustu auglýsingakeppni heims.
„Við erum himinlifandi að fá tilnefningu á Cannes fyrir Norðursalt“, segir Albert Muñoz, yfirhönnuður á Jónsson & Le’macks. Stofan leggur mikinn metnað í þróun vörumerkja og það er frábært að vinna slík verkefni með viðskiptavinum sem hafa metnað til að gera sannarlega vandaða hluti. Reynsla okkar sýnir að slík vinnubrögð skila sér ekki bara í verðlaunum heldur einnig betri árangri fyrir vöruna, sem er aðalatriðið.“
Hönnuðir umbúðanna eru Albert Muñoz, Sigurður Oddsson og Þorleifur Gunnar Gíslason hjá Jónsson & Le’macks, í samstarfi við Jón Helga Hólmgeirsson vöruhönnuð og teiknarann Mark Summers.
Norðursalt kom á markað í október 2013 og hefur unnið sér fastan sess á borðum íslenskra meistarakokka. Utan Íslands er Norðursalt nú fáanlegt í gæðaverslunum í Berlín og er frekari sókn hafin á markaði í Þýskalandi, á Norðurlöndum, Ítalíu, í Japan og Bandaríkjunum.