Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Enski boltinn byrjar aftur á þjóðhátíðardegi Íslendinga

$
0
0

Svo virðist sem sögusagnir um endurkomu ensku knattspyrnunnar hafi verið staðfestar í dag. Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið, í samráði við öll lið í úrvalsdeildinni á Englandi, að klára leiktíðina 2019-2020 í sumar. Keppni hefst á ný þann 17. júní með leikjum Manchester City gegn Arsenal og Aston Villa gegn Sheffield United.

Kunnugir telja líklegt að leikið verði án áhorfenda, enda England enn grálúsugt af veiru og rétt byrjað að leyfa samkomur allt að sex einstaklinga utan húss. Knattspyrnuleikur er sem kunnugt er samkoma 25 manna hið allra minnsta og eru þá ótaldir 14 varamenn, þjálfarar, aðstoðarfólk og boltakrakkar.

Ljóst er að víða verður fagnað á Íslandi, enda renna hér saman tveir einstakir gleðiviðburðir: Fæðingardagur Jóns Sigurðssonar og endurfæðing enskrar knattspyrnu. Óvíst er hvort er þjóðinni mikilvægara, sjálfstæðið eða efsta deild í knattspyrnu á Englandi.

Áhangendur Liverpool fagna eflaust mest allra, en liðið þarf einungis að vinna tvo leiki í viðbót til að lyfta meistaratitlinum í fyrsta sinn í 30 ár.

Heil umferð verður leikin í deildinni þann 20. júní en frekara plan hefur ekki verið tilkynnt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images