Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ofbeldi lögreglu er óháð landamærum

$
0
0

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að George Floyd, 46 ára svartur bandaríkjamaður, var myrtur af lögregluþjóni sem hélt honum niðri með því að halda hné sínu á hálsi hans.

Morðið náðist á myndband og á því heyrist og sést skýrt hvernig Floyd kvartaði ítrekað yfir því að ná ekki andanum og bað lögregluþjóninn um að drepa sig ekki. Vegfarendur kvörtuðu yfir aðferðum lögreglunnar og bentu á þegar Floyd hætti að hreyfa sig, aðhöfðust lögregluþjónarnir ekki.

Óeirðir og mótmæli hafa nú ríkt í um þrjá daga og í nótt var lögreglustöð í Minneapolis brennd til grunna.

Myndin er af vef lögreglunnar

Íslenska lögreglan keyrir um á landamæraeftirlitsbílnum sínum og handtekur fólk sem er að vinna verkamannavinnu fyrir forrík íslensk fyrirtæki, af því að samfélagið vill ekki bjóða þeim neitt betra.

Einnig virðist lögreglan vera algjörlega ómeðvituð eða algjörlega sama um #blacklivesmatter hreyfinguna, sem spratt upp úr öflugri andstöðu svartra og brúnna gegn lögregluofbeldi og rasisma, og deilir myllumerkinu #bluelivesmatter, eins og sjá má hér að neðan.

Skilaboðunum hér að ofan var deilt á samfélagsmiðlum fyrir 7 vikum. Þótt ekki sé verið að lýsa yfir stuðningi við morðingja Floyds breytir það ekki þeirri staðreynd að myllumerkið #bluelivesmatter er hugsað sem andsvar við #blacklivesmatter hreyfingunni.

Það er ekki bara í BNA sem lögreglan kemst upp með að taka ítrekað líf einstaklinga sem tilheyra jaðarsettum hópum. Íslenska lögreglan hefur átt beinan þátt í að draga 4 einstaklinga til dauða síðan 2004, og beinist ofbeldið yfirleitt að fólki sem notar vímuefni og/eða á við geðræn vandamál að stríða. Báðir hópar eru mjög jaðarsettir í íslensku samfélagi.

Síðasta ofbeldisverk lögreglunnar sem dró einstakling til dauða var 9. apríl 2019, en þá tóku tveir lögreglumenn þátt í að verða ungri konu að bana í bakgarði í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafði neytt vímuefna og var einnig í geðrofi. Eftirlitsnefnd með lögreglu sagði ekkert athugavert við málið.

Hættum að halda verndarvængi yfir ofbeldisverkamönnum ríkisins og opnum augun fyrir því augljósa: að lögreglan stendur saman í spillingu, morðum og ofbeldi óháð því í hvaða landi hún starfar.

#BlackLivesMatter
#GeorgeFloyd
#icantbreath
#ACAB
#stopdeportations


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images