Lögregla í Louisville í Kentucky skaut mann til bana í aðgerðum gegn mótmælendum í gærkvöld.
Sem kunnugt er hafa óeirðir geisað víða um Bandaríkin í kjölfar birtingar á myndbandi sem sýnir lögreglumann kæfa til bana blökkumanninn George Floyd sem var staðinn að því að framvísa fölsuðum peningaseðli.
Erlendir miðlar skýra svo frá að lögregla hafi ætlað að tvístra hópi mótmælenda á bílastæði við Dino’s (matvörubúð og bensínstöð) þegar einhver úr hópnum skaut í átt að lögreglu. Lögreglan skaut þá á mannfjöldann með þeim afleiðingum að einn maður lést. Atvikið átti sér stað um 12:15 að staðartíma, laust eftir að útgöngubann sem sett var í kjölfar fimm daga óeirða tók gildi.
Í þessu tilviki munu mótmælendur hafa safnast saman vegna máls George Floyd en fleiri mál hafa verið rifjuð upp í tengslum við það, í Louisville sem annarsstaðar. Sjö manns hafa særst í átökum við vopnaða lögreglu í borginni í öðrum mótmælum af svipuðum toga á síðustu dögum. Hvatinn að þeim mótmælum voru örlög annars fórnarlambs lögregluofbeldis, svartrar konu, Breonnu Taylor, sem var skotin til bana á heimili sínu í fíkniefnaleit lögreglu.





