Ódýrt ráð til að láta strigaskó verða eins og nýja!
Þegar kemur að sumrinu vilja flestir spóka sig í fínum og oft hvítum strigaskóm. Því miður eru hvítir strigaskór þess eðlis að þeir verða drullugir mjög fljótt. Þrátt fyrir að til séu ýmis hreinsiefni á markaðnum ná þau oft ekki öllum skítnum af.
Áður en þú ákveður að henda gömlu strigaskónum ættirðu að kíkja á ráð eitt sem Faith nokkur Chapelle sýndi fylgjendum sínum á YouTube.
Tekur hún þó fram að ekki nái ráðið til allra strigaskóa af öllum gerðum en fólk þurfi hinsvegar að prófa sig áfram.
Sýnir Faith skóna fyrir og eftir og tók hún afar skítugan Nike-skó og sýndi í mynd. Svo dró hún fram undraefnið: Tannkrem!
Nýtti hún sér einfaldlega Colgate Total Whitening sem fæst hér um bil í öllum verslunum á Íslandi.
Fyrst setti hún skóna í bað með þvottaefni. Svo dró hún fram tannkremið og þakti skóinn með því, áður en hún náði í ónotaðan tannbursta til að skrúbba yfirborðið.
Á Instagramreikningi Simple Hacks, er mælt með að nota hvítt tannkrem án litarefna þar sem litur getur fest sig í skónum.
Undraefnið matarsóda er að finna í tannkreminu sem ku gera það svo öflugt.
Faith lét skóna einnig í klór í sex tíma. Til að ná klórinu úr skónum (ekki nauðsynlegt) er hægt að þvo þá í þvottavél og láta þá þorna eðlilega í 24 tíma á eftir.
Síðan Faith póstaði myndbandinu hefur hálf milljón manna séð það og margir dásama hugvitssemina. Einn sagði: „Þetta er besta myndband sem ég hef séð hingað til. Þú getur bókstaflega séð skóna verða hvítari þegar hún skrúbbar þá með tannkreminu!“
Annar sagði: „Greinilega er tannkrem ekki bara til að hvítta tennurnar.“
Þriðji þakkar henni fyrir og segir skóna sína líta út fyrir að vera glænýja.
Þá er bara að prófa, ekki satt?



