Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trump hótar hernaðaraðgerðum og kallar eftir liðsauka almennra borgara

$
0
0

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur nú loksins ávarpað þjóðina vegna mótmælanna í kjölfar drápsins á George Floyd. Ekki þó til að lýsa yfir vilja til að rétta stöðu svartra og uppræta lögregluofbeldi heldur til að boða harðar aðgerðir gegn mótmælendum.

Í yfirlýsingu sinni hótaði Trump að beita öllum tiltækum ráðum til að stöðva óeirðirnar sem geisað hafa síðustu vikuna. Jafnframt sagði hann að óeirðarseggir yrðu ákærðir og beittir þungum refsingum.

Trump kallaði eftir því að ráðamenn á hverjum stað gripu til harðari aðgerða en auk þess skoraði hann á almenna borgara að leggja yfirvöldum lið. Fylkisstjórar hafa verið tregir til að beita hervaldi gegn mótmælendum en í yfirlýsingunni sagði Trump að ríkisstjórnin bæri ábyrgð á allsherjarreglu í landinu og að hann myndi beita neyðarheimild í lögum til þess að beita hervaldi innanlands og „leysa vandamálið fyrir þá“ ef þeir hlýddu ekki þessum fyrirmælum hans.

Trump sagðist ætla að leggja sérstaka áherslu á að vernda Washington. Í því skyni tæki algert útgöngubann gildi tafarlaust og því yrði fylgt eftir að fullum þunga. Hann varaði þá sem tækju þátt i óeirðum við því að þeir ættu þunga fangelsisdóma í vændum.

Að yfirlýsingu lokinni gekk forsetinn burt án þess að gefa fréttafólki færi á spurningum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images