Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Dagur sjávar –þema næsta árs er nýsköpun í þágu sjálfbærni

$
0
0

Dagur sjávar er í dag, 8. júní. Dagurinn hefur verið haldinn á vegum Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2008 og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um mikilvægi hafsins sem stærsta vistkerfis jarðarinnar.

Eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er verndun hafsins, sem aftur stuðlar að nokkrum öðrum heimsmarkmiðum, ekki síst því að útrýma hungri.

Þema næsta árs verður nýsköpunar- og þróunarverkefni sem stuðla að sjálfbærni vistkerfa sjávar.

Þótt tækniframfarir geti á margan hátt stuðlað að meiri sjálfbærni er sennilega mikilvægast að draga úr mengun. Allir vita að sjórinn er fullur af plasti en líklega hafa fáir séð það fyrir sér í byrjun þessa árs að einnota sóttvarnargrímur og latexhanskar ættu eftir að verða stórt vandamál. Stanslaus upplýsing og áróður virðist ekki hafa skilað sér í breyttri hegðun. Auk þess höfum við staðið okkur illa svo lengi að jafnvel þótt við hættum algerlega að henda rusli í sjóinn strax í dag, væri samt mikil þörf á hreinsun.

Athyglisverð viðleitni í þessa átt er starf Hollendingsins Boyan Slat sem byrjaði barnungur að vinna að hönnun hreinsunarbúnaðar sem nú hefur verið reyndur og lofar góðu. Önnur vél sem hönnuð er til að ná rusli úr ám á leið til sjávar er nú í þróun.

Vonandi verður átak næsta árs hvatning til fleiri verkefna sem stuðla að hreinsun sjávar. Það er þó ekki nóg að hreinsa burt rusl, stóra vandamálð er viðhorf sem er svo rótgróið að við Íslendingar eigum málshátt sem lýstir því: „lengi tekur sjórinn við.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images