Þýsk stjórnvöld segjast hafa „einhverjar sannanir“ fyrir því að Madeleine McCann sé látin en ekki er ljóst hvers eðlis þær sannanir eru.
Eins og alkunna er hefur stúlkunnar verið saknað frá því að hún hvarf í Algarve Portúgal vorið 2007. Hún var þá rétt tæpra fjögurra ára á ferðalagi með foreldrum sínum. Fyrir nokkrum vikum bárust böndin að 43 ára gömlum Þjóðverja, Christian Brückner sem hefur ítrekað verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Hann afplánar nú 7 ára fangelsisdóm fyrir að hafa nauðgað 72ja ára gamalli bandarískri konu ári 2005.
Fjölmiðlar hafa það eftir talsmanni þýsku lögreglunnar að komin séu fram einhver sönnunargögn um andlát stúlkunnar en að þau nægi ekki til þess að hægt sé að gefa út ákæru.
Hvarf tveggja annarra barna sem talið er að mögulegt að Christian Brückner beri ábyrgð á eru einnig til rannsóknar í Þýskalandi. Um er að ræða þýskan dreng sem hvarf frá Algarve árið 1996, þá 6 ára að aldri, og stúlku sem hvarf í Þýskalandi vorið 2015, hún var 5 ára.
Talið er að fleiri hugsanleg fórnarlömb Brückners gætu átt eftir að koma fram. Til dæmis hefur írsk kona, Hazel Behan, sem varð fyrir kynferðisárás í Portúgal 2004 farið fram á að rannsókn á máli hennar verði opnuð aftur eftir að hún sá lýsinguna á árás hans á hinn áðurnefnda 72ja ára brotaþola árið 2005. Behan segir lýsinguna á bæði aðferðum Brückners og hlutum sem hann hafði meðferðis minna óhugnanlega mikið á hennar mál.



