Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sviss/ átta ára barn sætir lögreglurannsókn vegna gervipeninga til helgiathafna

$
0
0

Svissneska lögreglan hefur til rannsóknar mál átta ára drengs sem sakaður er um að hafa reynt að nota gervipeninga sem gjaldmiðil í verslun í heimaþorpi sínu.

Haft er eftir fjölmiðlinum Basler Zeitung að um sé að ræða pappírsseðla sem eru notaðir sem hluti af fórnarritúali við útfarir í Kína. Nánar tiltekið eru eftirlíkingar af peningaseðlum (í þessu tilviki evrum) brenndar við útförina og þannig „fórnað“ í þeim tilgangi að tryggja velferð hins látna handan heims.

Drengurinn var ekki ákærður en nafn hans verður á skrá hjá lögreglunni fram í maí 2032.

Gervi-evrurnar eru prentaðar á venjulegan skrifstofupappír og á þeim er blátt, kínverskt letur. Þær komust í umferð í mars á hátíðahöldum í bænum Sissach, þar sem börn hirtu þær. Svissneskir frankar eru hinn opinberi gjaldmiðill í Sviss en mörg hótel, veitingastaðir og fleiri staðir þar sem mikið er um ferðamenn taka við evrum.

Í lok apríl fór drengurinn, 8 ára að aldri, ásamt 10 ára bróður sínum og leiksystur í búð í heimaþorpi sínu í nágrenni Dietgen þar sem yngri drengurinn spurði hvort hann gæti notað seðlana til að borga.

Enda þótt augljóslega væri um gervi-peninga að ræða taldi starfsfólk verslunarinnar skyldu sína að hafa samband við lögreglu enda yfirlýst stefna fyrirtækisins að tilkynna um falsaða seðla.

Þann 28. maí hafði lögreglan samband við foreldra drengsins og þau fengu í kjölfarið lögregluheimsókn sem stóð í þrjár klukkustundir. Þeim var m.a. sýnd upptaka úr eftirlitsmyndavél þar sem annar drengjanna og stúlkan sem var með þeim sjást standa við afgreiðsluborðið.

Að sögn lögreglunnar var talið nauðsynlegt að rannsaka málið vegna gruns um að falskir peningaseðlar hafi komist í umferð. Hltutverk lögreglu sé m.a. það að finna út hvort börnin hafti haft ásetning um að framvísa fölskum seðlum og hvort um refsivert brot sé að ræða.

Teknar voru lögreglumyndir af bræðrunum og gerð húsleit heima hjá þeim. Við leitina fundust fleiri gervi-seðlar; þrír 50 evru seðlar, tveir 20 evru seðlar, fimm 10 evru seðlar og þrír fimm evru seðlar. Seðlarnir voru gerðir upptækir, enda nauðsynlegt til að koma í veg fyrir afbrot.

The Guardian hefur fréttina eftiir Basler Zeitung


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images