Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Milley hershöfðingi biðst afsökunar á að hafa fylgt Trump á Lafayette torgi

$
0
0

Mark Milley hershöfðingi ávarpaði verðandi herforingja við útskriftarathöfn í gær. Athygli vekur að áherslan í erindi hans er á mannréttindi.

Eftir stuttan inngang um hlutverk og ábyrgð hersins sagði Milley að síðustu tvær vikur hefðu reynt sérstaklega á þolrif Bandaríkjamanna. Hann sagði að sér væri stórlega misboðið vegna hins hrottalega dráps á George Floyd og að dauði hans hefði magnað upp þá þjáningu, gremju og ótta sem svo margir Bandaríkjamenn lifa við, allan daginn, alla daga. Mótmælin væru ekki aðeins viðbrögð við dauða Floyds heldur einnig því ranglæti sem svartir Bandaríkjamenn hefðu búið við allt frá því að fyrstu þrælarnir sem rænt hafði verið frá afríku komu til Jamestown árið 1619. Þótt borgararastríð hefði að lokum bundið enda á þrælahald hefði jafnrétti að lögum ekki verið náð fyrr en 1965 og enn væri kynþáttamismunun við lýði.

Milley sagði að rasismi og kerfisbundin mismunun ætti ekki heima í Ameríku, heldur ekki innan hersins. Nauðsynlegt væri að gera betur en hingað til.

Við getum verið stolt af því að langstærstur hluti mótmælanna hefur farið friðsamlega fram. Friðsamleg mótmæli eru merki um að það frelsi sem Ameríka kennir sig við virki.

Milley sagðist líka vera stoltur af viðbrögðum Þjóðvarðliðsins og að vegna frábærs samstarf lögreglu og Þjóðvarðliðsins undir stjórn fylkisstjóra í meira en 30 ríkjum hefði ekki komið til þess að hersveitir væru sendar á vettvang.

Milley sagði að kerfið væri ófullkomið en að herinn myndi áfram standa vörð um réttindi og frelsi allra borgaranna. Ennfremur gerði hershöfðinginn fjölbreytileika innan hersins að umræðuefni.

Milley vakti máls á atburðunum á Lafayette torgi 1. júní, þegar forsetinn hótaði að beita hervaldi til að kveða niður óeirðir í landinu. Hann sagðist sjá eftir að hafa fylgt forsetanum við það tækifæri og sagðist hafa lært af þeim mistökum.

Ég hefði ekki átt að vera þar. Nærvera mín á þeirri stundu og í því andrúmslofti leiddi til þeirrar upplifunar að herinn sé innviklaður í innanríkismál. Þar sem ég er hátt settur embættsmaður innan hersins voru það mistök sem ég hef lært af og ég vona í einlægni að við höfum öll lært af því.

Milley lagði áherslu á réttinn til friðsamlegra mótmæla og minnti á gildi þess að eiðstafur þeirra sem gegna herþjónustu væri við stjórnarskrána sem tryggði öllum borgurum réttindi og frelsi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images