Snorri Ásmundsson verður fjallkona Reykvíkinga á 17 júní í ár.Þetta er fyrsta skiptið sem karlmaður er fjallkonan í Reykjavík og fer athöfnin fram í Pósthússtræti 13 og hefst kl 10:45.
Þar mun Fjallkonan halda erindi um náttúruvernd, kynþáttasamruna og kórónapælingar.
“Það má segja að ég hafi látið mig dreyma um fjallkonu hlutverkið síðan ég afsalaði mér forsetakandidat hlutverkinu fyrir 16 árum, því fjallkonan gefur oft tóninn og ég hef því hlutverki að gegna í samtímanum að gefa tóninn.
Svo er sagt að það hafi verið karlmaður sem fann upp fjallkonuna svo það er því tilvalið að í ár 2020 verði það karlmaður sem tali fyrir hana”






