Ef þú ferð
ht.
hjartað mitt
þá vil ég að þú vitir
að vonin mín
var vonin mín og þín
ef þú ferð.
Ef þú ferð
hjartað mitt
þá vil ég að þú skynjir
að hjartað mitt
sló við hjarta þitt
ef þú ferð.
Ef þú ferð
hjartað mitt
þá vil ég að þú skiljir
að ljóðin mín
voru ljóð til þín
ef þú ferð.
Ef þú ferð hjartað mitt
þá vil ég að þú heyrir
að söngur minn
var við sönginn þinn
ef þú ferð.
Ef þú ferð
hjartað mitt
þá vil ég að þú trúir
að saga mín
var saga þín og mín
ef þú ferð.
Ef þú ferð
hjartað mitt
þá vil ég að þú munir
að ást til þín
var stærsta ástin mín
ef þú ferð.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar, Heiðu Tryggva, sem reyndar heitir fullu nafni Arnheiður Tryggvadóttir.





