Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Skorað á Utanríkisráðherra og íslensk stjórnvöld að beita sér

$
0
0

Félagið Ísland-Palestína skorar á utanríkisráðherra og íslensk stjórnvöld að beita sér gegn áformum nýrrar ríkisstjórnar í Ísrael um að innlima hernumin landsvæði á Vesturbakkanum í trássi við alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Hér er á ferð harkaleg árás á Palestínu, ríki sem Ísland viðurkennir, og landrán sem gerir að engu vonir Palestínumanna um að fá að búa við frið og frelsi í lífvænlegu ríki.

Ísraelar hafa haldið Vesturbakkanum undir hernámi frá árinu 1967 og stunda þar grimmileg mannréttindarbrot gagnvart íbúum svæðisins. Á síðustu áratugum hafa ísraelsk yfirvöld flutt eigin ríkisborgara inn á Vesturbakkann og reist þar múra og landtökubyggðir sem eru ólögleg samkvæmt alþjóðalögum og úrskurði Alþjóðdómstólsins í Haag. Það að flytja eigin ríkisborgara inn á hertekin landsvæði er skýlaust brot á Genfarsáttmálanum sem aðildaríki sáttmálans, þar á meðal Ísland, eiga að sjá til að sé framfylgt.

Gangi áform ísraelskra yfirvalda eftir munu ólöglegar landtökubyggðir á Vesturbakkanum fá að standa áfram og þeim mun fjölga, á meðan borgaraleg réttindi palestínskra íbúa svæðisins eru virt að vettugi. Þessari einhliða aðgerð Ísraels er ætlað er að gera vonir Palestínumanna um frjálst og lífvænlegt ríki og hvers konar friðarvonir að engu. Palestínumönnum eru aðeins ætlaðar einangraðar landspildur í landi sundurskornu af múrum og landtökubyggðum, líkt og Apartheid-stjórnin í Suður-Afríku kom á fót á tímum aðskilnaðarstefnunar með Bantustans-svæðum ætluðum svörtum íbúum landsins.

Félagið Ísland-Palestína áréttar fyrri kröfur sínar til íslenskra stjórnvalda að þau uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar og beiti sér gegn landráni í Palestínu, sem Alþingi Íslendinga viðurkenndi sem sjálfstætt ríki árið 2011. Við skorum á utanríkisráðherra og íslensk yfirvöld að senda nýrri ríkisstjórn Ísraels skýr skilaboð um að Ísland mótmæli harðlega þessari aðför að alþjóðalögum og mannréttindum íbúa Palestínu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images