Meira en 330.000 manns hafa greinst með Kórónaveiruna í Afríku og 7,999 eru látnir. Yfir 6000 smit greindust á síðasta sólarhring. Þetta segja nýjar tölur frá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni WHO.
Nákvæmar tölur og frekari upplýsingar um stöðu einstakra landa innan Afríku má finna hér.
Áhrif kórónaveirunnar á Afríku eru fyrirsjáanlega skelfileg því vatnsskortur og ófullkomin heilbrigðisþjónusta víða um álfuna kemur í veg fyrir að hægt sé að tempra útbreiðslu veirunnar.






