Vorið eftir
ht.
fór ég í litla garðinn
við Laufásveg
sat lengi
á bekknum okkar
og ég fann
að þú sast þar
við hlið mér.
Um mitt sumar
kom ég aftur
í blárri úlpu
sat um stund
með lokuð augun
og ég vissi
að þú varst farinn.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar, Heiðu Tryggva, sem heitir reyndar fullu nafni Arnheiður Tryggvadóttir
.





