Tilkynnt hefur verið um sex manns sem létust vegna jarðskjálfta sem reið yfir suðurhluta Mexíkó í gærkvöld. Fjöldi manns særðist.
Skjálftinn mældist 7,4 a Richter og voru upptök hans í Oxacahéraði. Öll dauðsföll sem enn hefur verið tilkynnt um urðu á því svæði. Talið er að fleiri geti verið látnir eða slasaðir, einkum á afskekktum svæðum á vesturströndinni þar sem björgunarsveitir hafa ekki enn náð að afhafna sig.
Meira en 400 eftirskjálftar hafa mælst, sá öflugasti 4,6 á Richter.
Túristabærinn La Crucecita hefur orðið mjög illa úti. Haft er eftir bæjaryfirvöldum að þar hafi um 200 hús skemmst.
Mexíkanar hafa orðið illa úti vegna jarðskjálfta á síðustu 35 árum. Ekki færri en 10 þúsund manns fórust í skjálfta sem mældist 8,1 á Richter árið 1985 og síðan hafa hundruð látið lífið í jarðskjálftum, síðast árið 2017 en 361 andlát var staðfest eftir þá hrinu.



