Vinsæl, egypsk magadansmær, Sama el-Masry, var síðasta laugardag dæmd til þriggja ára fangavistar og sektar upp á fjárhæð sem nemur 2,5 milljónum íslenskra króna. Glæpur hennar var sá að hvetja til léttúðarlífs og ósiðsemi á samfélagsmiðlum.
El-Masry var handtekin í apríl vegna lögreglurannsóknar á myndskeiðum og ljósmyndum sem hún hafði deilt á samfélagsmiðlum, einkum á TikTok, og eru að mati ákæruvaldsins kynferðislegs eðlis. El-Masry hafnar þessum ásökunum og segir að efninu sem um ræðir hafi verið stolið og deilt í hennar nafni án samþykkis hennar.

Smáglæpadómstóll í Kaíró sagði á laugardag að ákærða hefði brotið gegn fjölskyldugildum í Egypalandi ásamt því að hafa stofnað, haldið úti og notfært sér aðganga á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að brjóta gegn almennu velsæmi.
„Það er stór munur á frelsi og léttúðarlíferni“ sagði John Talaat, þingmaður sem krafðist lögreglurannsóknar á el-Masry og fleiri konum sem pósta efni á TikTok. Talaat lét hafa það eftir sér í fjölmiðlum að el-Masry og fleiri áhrifakonur væru að eyðileggja fjölskyldugildi og hefðir, en það er bannað samkvæmt lögum og stjórnarskrá Egyptalands.
Lágmarks refsing fyrir að nota samfélagsmiðla til þess að brjóta lög er tveggja ára fangelsi og sekt sem nemur 2,5 milljón íslenskra króna. El-Masry segist munu áfrýja dómnum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem egpyskar konur eru sakaðar um að hvetja til léttúðar og lauslætis. Sem dæmi má nefna að leikkonan Rania Youseff sætti á síðasta ári lögreglurannsókn vegna kjóls sem hún klæddist á kvikmyndahátíð í Kaíró. Það mál var þó látið niður falla þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar. Raina Youssef baðst opinberlega afsökunar á því að hafa klæðst kjólnum.



