Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Piltur grunaður um morðið á systrunum á Wembley 6. júní

$
0
0

Átján ára piltur hefur verið handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald, grunaður um morðið á systrunum Bibaa Henry og Nicole Smallman á Wembley þann 6. júní sl.

Systurnar voru stungnar til bana en þær höfðu verið að fagna afmæli 46 afmæli Henry ásamt vinum sínum í Fryent Park um kvöldið og urðu einar eftir þegar þegar hópurinn leystist upp um það bil hálftíma eftir miðnætti. Talið er að þær hafi verið myrtar snemma um nóttina en lík þeirra fundust að morgni 7. júní.

Lögreglan segist hafa haft stöðuga viðveru í garðinum síðan líkin fundut og að rækileg leit hafi farið fram á vettvangi en þar sé um stór svæði að ræða og leit flókin.

Móðir systranna, Mina Smallman, hefur gagnrýnt lögregluna fyrir sein viðbrögð og segir að fjölskyldan hafi sjálf þurft að hefja leitina. Hún telur skýringuna vera þá að lögreglan hafi skoðað heimilisföng þeirra og séð að önnur þeirra var svört og skráð til heimilis í félagslegu húsnæði.

Tveir lögreglumenn voru handteknir í síðustu viku, sakaðir um að hafa deilt myndum af vettvangi morðsins með óviðkomandi. Mina Smallman segir að sorgin hafi orðið enn þungbærari við þær fréttir. Lögreglumennirnir hafi með þessu komið fram eins og dætur hennar væru ekki manneskjur.

The Independent greindi frá


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images