Tveggja barna móðir hefur nú uppljóstrað leyndarmáli mjúkrar húðar fjölskyldunnar – hún nýtir brjóstamjólk í sápugerð.
Ashley White (31) ákvað að gera „eitthvað öðruvísi“ eftir að hún eignaðist Miu í apríl á þessu ári. Hafði hún séð aðrar mæður á netinu búa til sápur úr brjóstamjólk og fannst henni það góð hugmynd.

Ashley, eiginmaður hennar Paul og dæturnar Mylee (10) og Mia (átta vikna) hafa öll notað sápurnar í samkomubanninu og segjast þau elska hvað þær geri húðina mjúka.

Eftir að hafa deilt myndum af sápunum á samfélagsmiðlum hafa margir, líka ókunnugir, viljað kaupa af henni sápur.
Hún sagði í viðtali við Fabulous: „Þetta var dálítið erfitt í fyrstu þar sem Mia átti erfitt með að taka brjóstið og mjólkin var ekki að koma. Þegar hún loks gerði það vildi ég nýta mjólkina mína í eitthvað annað.“
Ashley blandar saman glýceríni, brjóstamjólk og ilmkjarnaolíum.

„Þegar mjólkin kom safnaði ég henni saman og frysti dálítið magn í frysti. Ég vissi að brjóstamjólk væri góð á exem og Mylee þjáist af því þannig ég fletti því upp hvernig búa ætti til sápu úr mjólkinni. Nú notum við þetta öll í fjölskyldunni,“ segir Ashley
„Ég hef ekki fengið nein neikvæð viðbrögð en ég er alveg viðbúin því! Ég hef ekki sagt mörgum í kringum mig frá þessu – einn vinur minn kallaði þetta „crazy arse“ sápu, en fjölskyldan mín vill kaupa af mér sápur en ég gef þeim auðvitað fríar sápur.“
Til að búa til sápuna bræðir Ashley glýcerín í örbylgjunni og bætir svo hálfum bolla af brjóstamjólk út í ásamt ilmkjarnaolíu. Eftir að hafa sett þurrkuð lavenderlauf í sílikonmót lætur hún þau standa og harðna.

Þó þetta hljómi kannski furðulega eru kostir brjóstamjólkur ótvíræðir. Samkvæmt þeim sem prófað hafa hjálpar hún við að losna við bólur, exem, kláða í húð og ofnæmi, skrámur, sólbruna og fleira.
Aðrir segja að fyrir krakka með viðkvæma húð sé brjóstamjólk það allra besta þar sem engin aukaefni eru til staðar.
Læknar segja þó að sé brjóstamjólk notuð til framleiðslu hverfa flest næringarefnin úr henni.


Heimild: The Sun





