Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Samson og svarti hundurinn

$
0
0

Sonur Sáms eða „Son of Sam“ er einn af alræmdustu raðmorðingjum Bandaríkjanna. Hann myrti sex og særði sjö í New York borg á árunum 1976-77 og hélt borginni í heljargreipum óttans mánuðum saman. Morðvopnið var öflug skammbyssa, 44 kalibera.

Morðinginn hét David Berkowitz þá rúmega tvítugur, en sjálfur kallaði hann sig Sámsson í bréfasendingum til lögreglu áður en hann var handsamaður.

Þegar hann náðist játaði hann á sig öll ódæðisverkin eftir skamma yfirheyrslu og var að lokum dæmdur fyrir hvert og eitt morðanna í 25 ára fangelsi til lífstíðar eða að lágmarki 150 ára fangelsi.– og er sum sé enn í afplánun, 67 ára gamall.

David greindi frá því eftir handtökuna að hann kallaði sig „Son of Sam“ með vísan í hund nágranna síns, Sam Carr. Hundurinn væri andsetinn fornum satanískum drýsli og hefði fyrirskipað Berkowitz að fremja morðin. Sérstaklega þyrsti hann í blóð ungra kvenna. Fjölmiðlar kölluðu hundinn eftir það „Demon dog“ en hann hét að vísu bara Harvey. Þessi ferfætti Sámssonur var svartur labrador.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images