Í kórónafaraldrinum hóf hópur fólks að byggja upp Samstöðina, netsjónvarp sem sendir út zoom-spjallþætti með róttækri samfélagsumræðu og röddum sem ekki ná í gegn í meginstraumsfjölmiðlum.
Meðal þátta má nefna: Rauða borðið í umsjón Gunnars Smára Egilssonar, Öryrkjaráðið í umsjón Báru Halldórsdóttur og Maríu Pétursdóttur, Hin Reykjavík í umsjón Laufeyjar Ólafsdóttur og Daníels Arnar Arnarssonar, Kvótann heim! sem Ögmundur Jónasson heldur úti og Work in Progress í umsjón þeirra sem boðuðu til samstöðufundar á Austurvelli með Black Lives Matter, þeirra Dori Levitt, Sante Feaster og Jeffrey Guarino.
Vikuleg dagskrá er í dag um tíu tímar af samfélagsumræðu og á næstum vikum mun enn bætast við.
Alla þætti Samstöðvarinnar má nálgast á síðu stöðvarinnar á Facebook, youtube og á vef stöðvarinnar, samstodin.is og Rauða borðið má nálgast á öllum helst podcast-veitum og bráðlega aðra þætti stöðvarinnar.
Stór hópur fólks hefur tekið þátt í umræðunni og drepið á flestum réttlætis- og baráttumálum almennings. Þrátt fyrir takmarkaða dreifingu utan hefðbundinna fjölmiðla og þó allt starf við stöðina sé unnið í sjálfboðavinnu, hafa þættirnir dreifst víða og náð til þúsunda landsmanna.
Til að tryggja áframhaldandi starf Samstöðvarinnar og enn frekari uppbyggingu hefur verið stofnað almennt og lýðræðislegt félag, Alþýðufélagið, til að styðja við Samstöðina fjárhagslega. Félagar greiða frá kr. 1.250,- mánaðarlega í félagsgjöld og standa með því undir framleiðslu, upptöku og útbreiðslu þáttanna. Á aðalfundi í haust koma félagarnir saman og móta stefnuna til framtíðar.
Sú tíð er liðin að áskrift og auglýsingatekjur standi undir samfélagslegri þjónustu fjölmiðla. Eina færa leiðin til að halda úti róttækri fjölmiðlun í dag er að alþýðan standi undir henni sjálf. Með smáu framlagi frá mörgum getum við byggt upp rödd sem heyrist víða. Á vef Samstöðvarinnar getur fólk gerst félagi í Alþýðufélaginu og tekið með því þátt í að halda úti umræðunni innan Samstöðvarinnar og eflt hana enn frekar.
Á fyrstu þremur dögunum eftir að opnað var fyrir skráningar skráðu sig í félagið nógu margir til að standa straum af um 25% af fyrsta markmiði, að ná að tryggja núverandi dagskrá fyrir haustið.






